Mikið fjölmenni kom saman í Herjólfsdal í blíðskaparveðri í dag þegar Þjóðhátíð 2026 var formlega sett. Hörður Orri Grettisson, formaður ÍBV, setti hátíðina og gerði áratugalangar hefðir og þrotlausa vinnu sjálfboðaliða íþróttafélaganna Þórs og Týs að umtalsefni.
Sagði hann sjálfboðaliðana hafa lagt grunninn að þeirri Þjóðhátíð ÍBV sem landsmenn þekkja í dag. Færði hann þeim sérstakar þakkir, sem og öllum þeim sem koma að skipulagi hátíðarinnar í ár.
Magnús Bragason Vestmannaeyingur flutti hátíðarræðu og lagði meðal annars út frá þeirri einstöku samveru sem skapast í Herjólfsdal.
„Við komum hingað úr ólíkum áttum. Sum búum við hér, önnur eiga rætur í Eyjum. Svo eru þeir fjölmörgu gestir sem koma hingað ár eftir ár vegna þess að þeir elska Eyjarnar. En þegar við stöndum hér skiptir það ekki máli hvaðan við komum. Þúsundir einstaklinga verða að einni heild og þúsund hjörtu slá í takt,“ sagði Magnús.

Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, flutti hugvekju við athöfnina. Þar fjallaði hún meðal annars um samveru, samhug og mikilvægi þess að hátíðargestir bæru umhyggju hver fyrir öðrum.
„Það er enginn staður á Íslandi sem minnir okkur jafn skýrt á að von og björt sýn á lífið eru enginn barnaskapur heldur fyllsta alvara. Hún er ákvörðun. Hún er ákvörðun fólks sem gróf heimili sín upp úr öskunni, plantaði blómum þar sem hraunið hafði runnið og hélt áfram að halda Þjóðhátíð,“ sagði biskup.

Í hugvekju sinni hrósaði biskup einnig því öfluga forvarnarstarfi sem unnið hefur verið í Vestmannaeyjum, meðal annars undir merkjum átaksins Bleiki fíllinn. Átakið minnir á að ofbeldi eigi aldrei að líðast á útihátíðum.
Hún lagði áherslu á að það væri sameiginlegt verkefni gesta, aðstandenda hátíðarinnar, Þjóðhátíðarnefndar, ÍBV og Vestmannaeyinga að skapa öruggt umhverfi þar sem allir gætu notið hátíðarinnar. Þá hvatti hún alla til að leggja sitt af mörkum svo verslunarmannahelgin yrði bæði slysalaus og ofbeldislaus, meðal annars með þolinmæði, virðingu og velvild í garð samferðafólksins.
Hvítu tjöldin, eitt helsta kennileiti Þjóðhátíðar, risu í Herjólfsdal á miðvikudag þegar lokaundirbúningur hátíðarinnar náði hámarki. Að sögn þjóðhátíðarnefndar hafa þau líklega aldrei verið fleiri.
Hið árlega Húkkaraball fór síðan fram á fimmtudagskvöld við góðar aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu fór fyrsta nótt hátíðarinnar vel fram.
Veðrið hefur leikið við hátíðargesti og áfram er spáð björtu og hlýju veðri í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Lögregla verður með öflugan viðbúnað alla helgina og hvetur gesti til að sýna tillitssemi, virða mörk annarra og leggja sitt af mörkum til þess að hátíðin verði örugg og ánægjuleg fyrir alla.
