Mikið fjör á sjómannaskemmtun í Höllinni
Sjómannabjórinn 2025. Bragi, Sigurður og Rikki sem sá um uppboðið með bjórinn góða.

Góð aðsókn var á sjómannadagsskemmtuninni í Höllinni í gærkvöldi.  Þar bauð Einsi kaldi og hans fólk upp á veisluborð sem hæfði tilefninu. Veislustjóri var Simmi Vill og náði hann upp góðri stemningu.

Einni hápunkturinn var uppboð á Sjómannabjór ársins sem strákarnir í Brothers Brewery útbúa á hverju ári. Hann var að þessu sinni helgaður Braga Steingríms á Þrasa. Buðu feðgarnir, Bragi og Sigurður 800.000 krónur í flöskuna sem renna óskiptar til góðgerðarmála.

Þá tók tónlistin við og var hún sótt til síðustu aldamóta og mikið fjör. Fram komu Beggi í Sóldögg, Einar Ágúst, Jónsi í Í svörtum fötum og Eyjaraddirnar Haffi úr MEMM og Una Þorvalds. Öll sungu þau við undirleik Bigga Nielsen og hinna strákanna í Eyjasveitinni Gosunum.

Myndir Óskar Pétur.

 

 

Nýjustu fréttir

Minnisvarði um Þór gæti fengið nýjan stað
Áfram Noregur í kvöld – Heimisáhrifin virka
Draumurinn orðinn að veruleika
Einstakt safn Magnúsar vakti forvitni á Goslokahátíð
Þrjár vikur í Þjóðhátíð – uppbyggingin hafin í Herjólfsdal
Sumarlesturinn hefur aldrei farið betur af stað
Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.