Missti vigtunarleyfi í heilt ár vegna mistaka

Fata með þremur þorskum og tveimur grásleppum sem ekki voru vigtuð vegna mistaka varð til þess að Ísfélag Vestmannaeyja missti leyfi til að vigta eigin afla í heilt ár. Framkvæmdastjórinn hvetur til þess að viðurlögin verði endurskoðuð og stjórnvaldssektum beit í stað leyfissviptinga, segir í frétt RÚV í dag.

Fiskistofa svipti fyrr á árinu þrjú stór sjávarútvegsfyrirtæki, Skinney Þinganes, Loðnuvinnsluna og Ísfélagið, leyfi til að vigta afla, tímabundið. Forsvarsmenn fyrirtækjanna segjast hafa misst leyfin fyrir litlar sakir og Ísfélagið sem missti leyfið í heilt ár kallar eftir því að viðurlög séu í samræmi við alvarleika brota.

Ísfélag Vestmannaeyja á Þórshöfn missti heimavigtunarleyfi í apríl og fær það ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir. Stefán Friðriksson framkvæmdastjóri segir að vegna mistaka hafi þrír þorskar og tvær grásleppur sem komu sem meðafli ekki verið vigtaðar heldur líklegast farið með afskurðum í bræðslu. Óþægindi og kostnaður fylgi því að missa vigtunarleyfið því nú þurfi starfsmenn hafnarinnar að sjá um vigtunina á öllum tímum sólarhringsins. Það hafi hvorki verið ásetningur né ávinningur fyrir fyrirtækið af brotinu. Eðlilegra væri að Fiskistofa hefði heimild til að beita viðurlögum í samræmi við alvarleika brota til dæmis stjórnvaldssektum.

Eyþór Björnsson Fiskstofustjóri segir viðurlög lögbundin og svokallað heimavigtunarleyfi byggist á algjöru trausti. „Þarna er um að ræða oft á tíðum fyrirtæki sem eiga fiskvinnsluna, eiga veiðiskipið og síðan er það starfsmaður fiskvinnslunnar sem vigtar aflann til aflaskráningar í rauninni án aðkomu nokkurs opinbers aðila. Ég myndi segja að þessi þungi viðurlaganna endurspegli það traust sem þessum aðilum er sýnt með vigtunarleyfinu,“ segir Eyþór.

*Frétt hefur verið uppfærð.

Nýjustu fréttir

Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV
Kallar eftir tafarlausum úrbótum
Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  
Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi
Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.