Framkvæmdastjórn SSÍ mótmælir aukningu á afla til strandveiða í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag. Þar segir:
Meðan félagsmenn innan SSÍ sem eru launamenn allt árið hjá útgerðum þessa lands, sæta skerðingu á aflaheimildum er stefnt að aukningu á afla til strandveiða. Því er haldið fram óhikað að þessi aukning sé „bara“ tekin úr sjónum. Í þess orð fyllstu merkingu er það jú svo. Rökin eru samt sem áður handónýt.
Sá afli sem veiddur er á Íslandsmiðum er í flestum tilfellum bundinn við tillögur Hafró og síðan úthlutun hins pólitíska valds, sem hefur yfirleitt verið hin sama og fiskifræðingar leggja til. Nú bregður svo við að strandveiðisjómenn heimta meiri aukningu til sín en aðrir fá. Einhversstaðar þarf að taka þá aukningu sama hvað þusað er um annað.
Ef strandveiðipotturinn verður aukinn, gerir SSÍ þá kröfu á ríkisvaldið að aukning til almenna aflamarkskerfisins sé í sama hlutfalli. Það er ótækt að eitt form útgerðar geti kallað eftir nánast óheftri aukningu meðan aðrir sitja eftir með minni aflaheimildir. Rómantískar strandveiðar eiga ekki að vera rétthærri en aðrar veiðar þó nafnið sé fallegt.
Á samfélagsmiðlunum er auglýst eftir sjómönnum til strandveiða! Í framhaldinu fær skrifstofa SSÍ hinar furðulegustu fyrirspurnir vegna hinna rómantísku strandveiða. T.d. hvort ekki sé til kjarasamningur fyrir strandveiðisjómenn! Sjómanna sem eru sjálfs síns herrarr, atvinnurekendur og útgerðarmenn! Eiga skipin og gera út á eigin ábyrgð!
SSÍ hefur vinsamlega bent viðkomandi á að setjast hinu megin við borðið og semja við sjálfa sig. Það er ekki tilgangur strandveiðikerfins að sjómenn séu leiguliðar eigenda báta sem kallast strandveiðibátar. Framkvæmdastjórn SSÍ bendir á að meðan á strandveiðum stendur, lækka verð á fiskmörkuðum sem hefur síðan bein áhrif á kjör sjómanna sem hafa gert sjómennsku að sinni atvinnu allt árið.
Ef villtustu draumar strandveiðisjómanna verða að veruleika um veiðar í 48 daga með tæplega 700 kílóa þorskafla á dag, munu aðrir útgerðarflokkar blæða fyrir með tilheyrandi afleiðingum. Ef um 800 skip verða á strandveiðum í sumar má gera ráð fyrir 26.000 tonna afla að lágmarki, jafnvel ívið meiri. Fiskur sem er verðminni og lakara hráefni en ella. Meira er flutt út af óunnum afla á strandveiðitímabilinu.
Ef þessar auknu heimildir verða teknar úr almenna aflamarkskerfinu er ljóst að félagsmenn félaga innan SSÍ munu missa af verulegum tekjum. Skattgreiðslur til ríkis og sveitarfélaga dragast saman á sam tíma og Ríkis- og sveitasjóðir eru reknir með halla. Útgerðir munu binda skipin fyrr um sumarið en þær hafa gert undanfarin ár og fiskvinnslufólk verður sent heim.
Þetta er það sem blasir við hinum almenna sjómanni ef strandveiðar verða auknar eins og til stendur hjá nýrri ríkisstjórn.
F.h. Framkvæmdastjórnar Sjómannasambands Íslands,
Valmundur Valmundsson formaður
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst