Mun að óbreyttu segja sig frá rekstrinum svo fljótt sem verða má
Í árslok 2015 var skuld Hraunbúða við aðalsjóð Vestmannaeyjabæjar orðin um 372 milljónir og að til þess að geta veitt þá nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu sem ríkið er ábyrgt fyrir þarf Vestmannaeyjabær að greiða um 35 milljónir króna á ári með rekstrinum. �?ar er því í raun um að ræða niðurgreiðslu sveitarfélagsins á lögbundinni þjónustu ríkisins. Að óbreyttu mun sveitarfélagið neyðast til að segja sig frá rekstrinum svo fljótt sem verða má.
�?etta kom fram á síðasta fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs þar sem lá fyrir minnisblað frá bæjarstjóra um rekstur hjúkrunarheimilisins að Hraunbúðum. Í því er athygli vakin á því að stofnunin glímir við alvarlegan rekstrarvanda sem skýrist eingöngu af því að framlög ríkisins duga ekki fyrir lögbundinni þjónustu. �?á er einnig minnt á að rekstur hjúkrunarheimilis er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélagsins heldur beri ríkið alla ábyrgð á þeirri mikilvægu þjónustu samkvæmt lögum um málefni eldri borgara. Ríkið hefur enn ekki kynnt fyrir Vestmannaeyjabæ nýjan þjónustusamning sem gera átti árið 2015. �?ví er ekki í gildi neinn samningur um þennan rekstur í Vestmannaeyjum heldur sinnir Vestmannaeyjabær honum á forsendum hefðar.
Fram kemur að í árslok 2015 er skuld Hraunbúða við aðalsjóð Vestmannaeyjabæjar orðin um 372 milljónir og að til þess að geta veitt þá nauðsynlegu heilbrigðisþjónustu sem ríkið er ábyrgt fyrir þarf Vestmannaeyjabær að greiða um 35 milljónir króna á ári með rekstrinum. �?ar er því í raun um að ræða niðurgreiðslu sveitarfélagsins á lögbundinni þjónustu ríkisins.
Ráðið þakkaði minnisblaðið og segir stöðuna mjög alvarlega. �??Áður hefur komið fram einbeittur vilji ráðsins til að ráðast í miklar aðgerðir í málefnum eldri borgara á komandi misserum. Umtalsverðar byggingaframkvæmdir á undanförnum árum hafa fjölgað mjög búsetuúrræðum fyrir aldraða og ber þar hæst svokallaðar 60+ íbúðir að Kleifarhrauni. Félagsstarf eldri borgara hefur einnig fengið mikinn og góðan byr í seglin með nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu í Kviku. Á döfinni eru miklar framkvæmdir í öldrunarmálum þar sem meðal annars eru lögð drög að fjölgun þjónustuíbúða, bættri aðstöðu til dagdvalar, byggingu nýrrar álmu fyrir fólk með heilabilun við Hraunbúðir, fjölgun rýma á dvalarheimili og fl. Rétt er að ítreka að þessi alvarlegi halli á þjónustu ríkisins mun ekki hafa áhrif á þann vilja né fyrirhugaðar aðgerðir sveitarfélagsins hvað málaflokkinn varðar,�?? segir í bókun ráðsins.
Hins vegar geti bærinn með engu móti haldið áfram rekstri Hraunbúða með núverandi hætti þegar fyrir liggur að rekstrarframlög ríkisins duga hvergi nærri. �??Að öllu óbreyttu mun hallarekstur á þjónustu ríkisins halda áfram að kalla á framlög frá sveitarfélaginu og hindra þar með aðra þjónustu. Ráðið minnir enn fremur á að nýlega lét Vestmannaeyjabær vinna vandaða rekstrarlega úttekt á heilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum þar sem sýnt var fram á þá gríðarlegu hagræðingu sem fylgir því að sameina alla þá þjónustu undir einn hatt. Hagræðingin af þeirri aðgerð var umfram rekstrarhalla Hraunbúða og færi einnig langt með að greiða til að mynda fyrir aukna fæðingarþjónustu. �?eirri úttekt mætti ríkið með þögninni.�??
Ráðið telur mikilvægt að heilbrigðisráðherra verði upplýstur um þessa alvarlegu stöðu og að ráðuneytið geri grein fyrir því hvernig ríkið hyggst axla ábyrgð á rekstrinum. Að óbreyttu mun sveitarfélagið neyðast til að segja sig frá rekstrinum svo fljótt sem verða má.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.