Múrbúðin, sem rekur byggingavöruverslanir í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri og Húsavík, opnar verslun í Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þar verða í boði allar almennar byggingavörur og eigandinn óttast ekki samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Múrbúðin verður til húsa að Flötum 29 þar sem Geisli var áður.