Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut í gær hét Hallgrímur �?. Magnússon. Hann var fæddur 29. september 1949, búsettur að Bjarkarbraut 18 í Reykholti í Biskupstungum. Hallgrímur lætur eftir sig eiginkonu, fjórar uppkomnar dætur og níu barnabörn. Hann var læknir og sinnti störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, bæði í Hveragerði og á Selfossi.
Hallgrímur starfaði sem læknir í Vestmannaeyjum á árunum fyrir 1980 og héldu margir Eyjamenn tryggð við hann eftir að hann flutti héðan.