Nauðsynlegt að stækka Hraunbúðir
Afnám fasteignagjalda á eldri borgara er gott og gilt. �?að gerir fleirum fært að búa lengur í sínu eigin húsnæði. En það breytir ekki þeirri staðreynd að sumir geta það einfaldlega ekki lengur. �?að eru dæmi þess að eldri borgarar séu á spítalanum hér því þeir geta ekki lengur búið heima hjá sér en ekkert er plássið fyrir þá á Hraunbúðum. �?etta mál leysist ekki með einu pennastriki. Né á örfáum mánuðum. �?að þarf að fara að huga að stækkun Hraunbúða með þetta að markmiði. Hvernig best er að fara að því, veit ég ekki, en ráðamenn bæjarins geta ekki litið framhjá þessu lengur. �?etta mun taka tíma, athuga hvað sé ráðlegast að gera og hefja framkvæmdir. Á meðan lengist listi þeirra sem þurfa önnur búsetuúrræði.
Á stefnuskrá Eyjalistans er tekið fram að við viljum byggja suðurálmu Hraunbúða. �?ar myndast þá rými fyrir tómstundir, því þó að eldri borgarar fái húsnæði í Kviku sér hver einstaklingur að það kemur aldrei í staðinn fyrir almennilegt tómstundarými. Með byggingu suðurálmunnar yrði einnig aðstaða fyrir sjúkraþjálfun sem er afar mikilvæg. �?á að sama skapi losnar rými þar sem tómstundir eru nú sem hægt er að afmarka fyrir einstaklinga með heilabilun, sem brýn þörf er á.
Við viljum einnig fá iðjuþjálfa til starfa. �?eir einstaklingar sem enn búa í heimahúsi eiga sumir orðið erfitt með að athafna sig. Iðjuþjálfar geta þá komið heim til þessa einstaklinga, skoðað aðstæður, og ráðlagt þeim sem þar búa um nýjar/betri leiðir til að létta sér lífið. �?að er ekki nóg að hvetja fólk til þess að vera lengur heima ef það á erfitt með daglegar athafnir. �?ar kæmi iðjuþjálfi verulega að gagni.
En það er ljóst að stækkun Hraunbúða verður að vera forgangsverkefni nýrrar bæjarstjórnar.
Bergvin Oddsson – 14. sæti Eyjalistans

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.