Niðurgreiddar máltíðir hafi áhrif á skólastarf

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar fyrr í mánuðinum að boðið verði upp á gjaldfrjálsar skólamáltíðir grunnskólabarna frá hausti.

Meðal erinda á fundi fræðsluráðs Vestmannaeyja í vikunni sem leið voru gjaldfrjálsar skólamáltíðir, og fór framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór yfir stöðu mála.

Í máli hans kom fram að í dag eru nánast öll börn í 1. til 5. bekk að þiggja skólamáltíðir en einungis um þriðjungur barna í 6. til 10. bekk. Búast má við að gjaldfrjálsar skólamáltíðir geti haft áhrif á skólastarf og uppsetningu skóladagsins.

Fram kemur í fundargerð að ráðið þakkaði kynninguna en ítrekaði þær athugasemdir sem Vestmannaeyjabær hafði lagt fram vegna málsins.

 

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.