Októberfest Hallarinnar og Einsa kalda

„Þann 3. október ætlum við að halda okkar árlega októberfest í Höllinni. Þá dælum við bjór í bjórtjaldi, verðum með matartjald og gerum geggjaða München stemningu. Ásgeir Páll, partýstjóri, Matti Matt og Una&Sara troða upp og verður hægt að fara í ýmsa leika, s.s. beerpong. Allir sem mæta í búning fá frían bjór,“ segir í fréttatilkynningu frá Höllinni í Vestmannaeyjum.

„Það verður sannkölluð München stemning í Höllinni þann 3. október. Beerpong, Matti Matt, Una&Sara, stígvélaþamb og margt fleira. Í alvöru partý þarf sjálfan partýstjórann og verður Ásgeir Páll í húsi með sína stemningu og skífuþeyting.

Bjórtjald á staðnum og matartjald að hætti Einsa kalda. Boðið verður upp á krydd-pylsur, bratwurst-pylsur, vínarschnitsel, München-dressingu, bbq-rif, hrásalat, kartöflusalat og að sjálfsögðu súrkál. Þá verður einnig geggjað pretzel með ostadýfu,“ segir einnig í tilkynningunni og bent á að aldurstakmark er 18 ára.

Nýjustu fréttir

Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.