Á þriðjudaginn var greint frá því að búið væri að ganga frá ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Ólafur Jóhann Borgþórsson, tekur við starfinu um áramót af Herði Orra Grettissyni.
Ólafur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum, og þekkir því ágætlega til í nýju starfi. Hann segir í samtali við Morgunblaðið í dag að starfið sé spennandi tækifæri fyrir sig, sem og að flytja heim til Vestmannaeyja og takast á við nýjar áskoranir.
„Vonandi verður það til heilla að fá framkvæmdastjóra sem er vanur að fara með bæninar sínar, svo Landeyjahöfn verði meira opin yfir árið,“ segir Ólafur í samtali við Morgunblaðið.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…