Búið er að ganga frá ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra Herjólfs. Fram kemur í tilkynningu frá stjórn Herjólfs ohf. að Ólafur Jóhann Borgþórsson hafi verið ráðinn í starfið.
„Eftir mat á umsóknum, viðtöl við umsækjendur og umsagnir aðila hefur stjórn Herjólfs ohf. ákveðið samhljóða að ráða Ólaf Jóhann Borgþórsson í starf framkvæmdastjóra félagsins og mun hann hefja störf 1. janúar nk.
Ólafur er 43 ára að aldri og er fæddur í Vestmannaeyjum. Hann útskrifaðist með embættispróf í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og hefur starfað sem prestur frá árinu 2007 á höfuðborgarsvæðinu. Ólafur Jóhann mun flytja búferlum til Vestmannaeyja.
Stjórn Herjólfs býður Ólaf Jóhann velkominn til starfa og þakkar þeim sem sóttu um starfið fyrir þann áhuga sem þau sýndu.“ segir að endingu í tilkynningunni.
Páll Scheving, stjórnarformaður Herjólfs ohf. segir í samtali við Eyjafréttir að okkar helsti andstæðingur – er kemur að samgöngum – sé náttúran og því sé ekki slæmt að fá mann í starfið sem sé í góðum tengslum við almættið.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst