Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Fraktarar 07 2023
Gámaflutningaskip í Vestmannaeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vinnslustöðin hf. segir alvarlega stöðu vera komin upp í flutningsmálum til og frá Vestmannaeyjum og að truflanir undanfarnar vikur hafi haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins. Í umfjöllun á vefsíðu fyrirtækisins kemur fram að tafir, ófyrirsjáanleiki og röskun á flutningum hafi meðal annars haft áhrif á hráefnisöflun, framleiðslu og afhendingar til viðskiptavina.

Fyrirtækið er nýkomið út úr loðnuvertíð og hefur sett upp afhendingaráætlanir sem nú ganga illa eftir. Þá segir að jafnframt gangi erfiðlega að koma afurðum á markaði, meðal annars saltfiski til Portúgals í þurrkun.

„Áreiðanlegir flutningar eru ekki lúxus – þeir eru grunnforsenda atvinnulífsins í Eyjum,“ segir Björn Matthíasson, rekstrarstjóri VSV Seafood Iceland.

Hráefni berst ekki með eðlilegum hætti

Samkvæmt Sverri Haraldssyni, sviðsstjóra bolfiskssviðs, hefur hráefnisflæði til vinnslu verið óstöðugt.

„Hráefni berst ofan af landi frá skipum VSV, viðskiptabátum og fiskmörkuðum. Flutningar frá Reykjavík hafa brugðist með skömmum fyrirvara og flutningsgeta Herjólfs er takmörkuð og flutningar hægir,“ segir hann.

Þetta leiðir til þess að hráefni berst ekki á réttum tíma og í sumum tilvikum í ójöfnu magni, með þeim afleiðingum að vinnslan hefur ekki alltaf getað verið á fullum afköstum og jafnvel orðið hráefnislaus á köflum.

Skipulag flutninga raskast

Þrátt fyrir mikið umfang flutninga síðustu vikur segir Vinnslustöðin að skipulag þeirra hafi ítrekað raskast. Gámaskip hafi verið send til Vestmannaeyja með stuttum fyrirvara til að „tappa af“ höfninni og flytja gáma annað, í stað þess að fylgja áætlun.

Slíkt rask hefur í för með sér aukinn kostnað og meiri óvissu í rekstri.

Gagnrýna ákvarðanir skipafélaga

Vinnslustöðin gagnrýnir einnig ákvarðanir skipafélaga sem hafa haft bein áhrif á hráefnisflæði til fyrirtækisins.

„Eimskip sleppti viðkomu í Vestmannaeyjum í dag vegna veðurs sem nú er gengið niður – eins og spár gerðu ráð fyrir. Skipið sigldi framhjá Eyjum og það hefði ekki tafið það mikið að koma hér við. Sú ákvörðun hefði hins vegar skipt sköpum fyrir hráefnisflutninga til okkar, sem eru nú í miklum óefnum,“ segir Björn Matthíasson.

Hann bendir jafnframt á að fyrirtækið hafi undanfarið verið að flytja út um 30–35 gáma á viku.

Landeyjahöfn undir gagnrýni

Í umfjölluninni er einnig bent á að vandamál tengd Landeyjahöfn hafi lengi verið þekkt og hafi bein áhrif á flutningsöryggi.

Takmörkuð dýpt og síendurtekin rekstrarvandamál dragi úr áreiðanleika siglinga Herjólfs. Undanfarnar vikur hafi einungis verið hægt að sigla til Þorlákshafnar, sem þýði að ferðum Herjólfs fækki úr sjö á dag niður í tvær. Á viku jafngildir það fækkun úr 49 ferðum niður í 14.

Vinnslustöðin telur óásættanlegt að þessi staða sé viðvarandi, 16 árum eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun, og bendir á ábyrgð Vegagerðarinnar í þeim efnum.

Horfa til stórskipahafnar við Eiðið

Til lengri tíma telur fyrirtækið nauðsynlegt að horft sé til varanlegra lausna í flutningsmálum Vestmannaeyja, þar á meðal uppbyggingar stórskipahafnar við Eiðið.

Slík uppbygging myndi auka flutningsgetu, bæta sveigjanleika og draga úr þeirri viðkvæmni sem núverandi fyrirkomulag hefur í för með sér.

„Grunnforsenda atvinnulífs“

Að mati Vinnslustöðvarinnar ná áhrif óstöðugra flutninga langt út fyrir rekstur einstakra fyrirtækja og snerti atvinnuöryggi og stöðugleika í samfélaginu í heild. „Áreiðanlegir flutningar eru ekki lúxus – þeir eru grunnforsenda atvinnulífsins í Eyjum,“ segir Björn Matthíasson.

Hér má sjá alla umfjöllunina.

Nýjustu fréttir

Óstöðugir flutningar valda vandræðum í Eyjum
Séra Kristján segir upp sem vígslubiskup í Skálholti
Arnar Pétursson valdi leikmannahóp fyrir lokaleiki undankeppni EM
Ófært í Þorlákshöfn – Herjólfur bíður átekta fyrir utan höfnina – uppfært
Veðrið gengur niður
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Snælduvitlaust veður í Vestmannaeyjum
Bókin um ESB – Hvað er í pakkanum? 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.