Rannsaka ætluð brot fyrirtækja í úrgangsþjónustu
Sorpa Ruslagamur Tms 20250227 142322
Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi í dag húsleitir og aðrar rannsóknaraðgerðir vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu. Aðgerðirnar eru hluti af rannsókn sem byggir á kæru Samkeppniseftirlitsins og beinast að meintum brotum starfsmanna fyrirtækjanna á samkeppnislögum. Fram hefur komið að fyrirtækin sem um ræði séu Terra og Kubbur.

Rannsaka samráð um tilboð og markaðsskiptingu

Samkvæmt tilkynningu Samkeppniseftirlitsins hefur embættið jafnframt til rannsóknar hugsanleg brot fyrirtækjanna sjálfra á banni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, sem varðar samráð keppinauta um tilboð í útboðum og skiptingu markaða. Framangreindar aðgerðir voru framkvæmdar í samvinnu Samkeppniseftirlitsins og embættis héraðssaksóknara, í samræmi við heimildir 42. gr. laganna. Í tilkynningunni segir að ekki sé gefið upp hvaða fyrirtæki rannsóknin nær til og ekki verða veittar frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.

Refsing og sektir koma til greina

Samkvæmt 41. gr. a samkeppnislaga geta starfsmenn fyrirtækja sætt sektum eða allt að sex ára fangelsi fyrir að taka þátt í samráði milli keppinauta. Fyrirtækin sjálf geta jafnframt sætt stjórnvaldssektum samkvæmt 37. gr. laganna. Samkeppniseftirlitið metur í slíkum tilvikum hvort kæra skuli mál til lögreglu með hliðsjón af alvarleika brotsins og réttarvörslusjónarmiða.

Útboð í Eyjum haustið 2024

Sorphirða og förgun í Vestmannaeyjum var boðin út árið 2024 og bárust þrjú tilboð til bæjarins — frá Íslenska gámafélaginu, Kubb og Terra. Samkvæmt afgreiðslu bæjarráðs í september í fyrra lagði framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar til að tekið yrði tilboði Terra, sem reyndist hagstæðast, og samþykkti bæjarráð það samhljóða. Framkvæmdastjóranum var falið að ganga frá samningi við Terra, sem tók formlega við þjónustunni 1. desember sama ár. Fyrir hafði Kubbur séð um sorphirðu og förgun í Eyjum.

Óvissa og ágreiningur um útboðsskilmála

Eins og Eyjafréttir greindu frá í fyrra fylgdi útboðinu nokkur óvissa um túlkun skilmála. Heimildir blaðsins sögðu skilmála í útboðsgögnum óskýra, meðal annars varðandi það hvort sveitarfélagið myndi ákveða gjaldskrá fyrir móttöku og urðun sorps eða hvort þjónustuveitandinn hefði þar ákvörðunarvald. Þá var orðalag í gögnunum talið óljóst um hvort gjöldin rynnu til þjónustuaðilans sjálfs eða sveitarfélagsins.

Af þessum sökum, og vegna þess að tilboðsskrá Kubbs var að hluta til óútfyllt, var tilboð þess metið ógilt. Sú niðurstaða var kærð til úrskurðarnefndar útboðsmála, sem staðfesti ákvörðun Vestmannaeyjabæjar. Ekki hefur verið staðfest hvort rannsóknin sem nú stendur yfir tengist útboðinu í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Dramatískur sigur ÍBV á Haukum
Stórsigur ÍBV á Akureyri
Lengjubikarinn hófst í dag hjá ÍBV
Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.