Ríflega 14 þúsund færri farþegar í júlí
farth_herj_nyr
Farþegar um borð í Herjólfi. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

„Herjólfur flutti 75.489 farþega í júlí sem er 14.282  farþegum minna en fluttir voru í júlí árið áður. Fluttir hafa verið 257.638 farþegar fyrstu sjö mánuði ársins sem er rúmlega 3% fækkun frá árinu áður.“ segir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs í samtali við Eyjafréttir/Eyjar.net.

Hann segir jafnframt að töluverð fækkun hafi verið á farþegum eftir góða goslokahelgi. „Enda lék veðrið okkur grátt allan júlímánuð. Mjög góðir flutningar voru þá daga sem sólin skein en farþegum fækkaði töluvert þess á milli.

Átta ferða siglingaáætlun hófst 1. júlí  og klárast núna 11. ágúst. Vel hefur gengið að sigla, tímaáætlanir staðist vel og viðskiptavinir almennt ánægðir með þessa þjónustuaukningu.“ segir Hörður Orri.

Smelltu til að opna súluritið stærra. Heimild/Herjólfur.

 

Tímaáætlanir staðist vel í nýrri áætlun

Nýjustu fréttir

Allison Clark tryggði ÍBV jafntefli með marki í blálokin
Staða mála hjá Herjólfi
Embla Harðardóttir sleit krossband gegn FH
Rannsóknarhola Eyjaganga komin á beinu brautina á ný
Herjólfur með sjö ferðir til Landeyjahafnar í dag
Geta Eyjastúlkur haldið pressunni á Breiðablik?
Díana Dögg og Andrea spila oddaleik um þýska meistaratitilinn
Herjólfur til Þorlákshafnar
viðburðir
Sa Portret 02022026 1
27. maí 2026
08:30
Hringferð SA í Akóges-salnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.