Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
Vélin sem notuð er í flugið, KingAir Beechcraft 200. Mynd/aðsend.

Innviðaráðuneytið hefur samþykkt beiðni Vestmannaeyjabæjar um að framlengja ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja fram til mánaðarmóta. Frá þessu er greint á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar.

Í framhaldinu mun Vegagerðin hafa samband við flugfélagið Norlandair um áframhaldandi flug samkvæmt óbreyttu fyrirkomulagi, en gert er ráð fyrir tveimur ferðum á dag áfram.

Ástæða framlengingarinnar er sú að Landeyjahöfn hefur enn ekki opnað fyrir fulla ferjuáætlun og því talið nauðsynlegt að halda fluginu áfram um sinn. Í frétt Vestmannaeyjabæjar kemur fram að með ákvörðuninni verði áfram tryggður aðgangur íbúa, fyrirtækja og annarra að öruggu og reglubundnu flugi til og frá Eyjum.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.