Ég elska Vestmannaeyjar. Hér hef ég búið, starfað og tekið þátt í samfélaginu nánast alla mína ævi. Ég veit að hagsmunum okkar er best borgið með því að við eyjamenn stöndum saman. Hið sama á við um Sjálfstæðisflokkinn. Honum vegnar best þegar við sjálfstæðismenn stöndum saman.
Ég er ekki einn af þeim sem hef heilaga ástríðu fyrir prófkjörum, ekki frekar en öðrum aðferðum við það að koma saman framboðslistum. Það veltur á aðstæðum hverju sinni hvaða leið ég tel besta.
Á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum var nýlega tekin ákvörðun um að halda prófkjör vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Sem formaður fulltrúaráðsins tók ég þátt í fundinum og stend heilshugar að baki niðurstöðu hans. Á fundum fulltrúaráðs hefur verið rætt að við þyrftum að vinna að því af heilum hug að gefa fólki tækifæri að mæta í Ásgarð og finna sig velkomið. Tengt því hefur verið rætt eftir ákvörðun um prófkjör að það gæti hjálpað okkur á þeirri leið að opna faðminn fyrir fólki sem hefði mögulega áhuga á að sameinast flokknum ýmist sem nýir félagar, eða félagar sem væru að koma aftur heim. Ég hef tekið þátt í þeirri umræðu af heilum hug og finnst við vera á réttri leið.
Í kjölfar ákvörðunarinnar ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjörinu og lét því af formennsku í fulltrúaráði. Þrátt fyrir að hafa verið í pólitísku grasrótastarfi hér í Eyjum í hátt í þrjá áratugi þá hef ég ekki setið sem kjörinn fulltrúi og langar nú að kanna hvort að fólk treysti mér til slíkra starfa.
Undanfarin ár hef ég fengið að gegna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Vestmannaeyinga. Ég hef setið í fjölskylduráði, framkvæmda- og hafnarráði og umhverfis- og skipulagsráði. Sú reynsla hefur gefið mér góða innsýn í verkefni bæjarins og staðfest þá sannfæringu mína að með ábyrgri stjórn og skýrum áherslum getum við áfram byggt upp öflugt samfélag hér í Eyjum. Jafnvel betra en það sem við eigum í dag.
Framundan eru mikilvæg verkefni fyrir Vestmannaeyjar. Í of langan tíma hefur kyrrstaða ríkt hvað samgöngur varðar. Reksturinn hefur þyngst með versnandi rekstrarniðurstöðu og sum árin með rekstrartapi. Við þurfum að halda áfram að efla atvinnulífið, tryggja enn betri þjónustu við fjölskyldur og skapa enn betri aðstæður þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börnin sín. Þar og svo langtum víðar vil ég leggja mitt af mörkum.
Ég hef eins og margir sjálfstæðismenn hér í Eyjum lagt mig fram til að skapa sátt um störf flokksins okkar hér í Eyjum. Ég mun áfram leggja mig fram um að sú sveit fólks sem kemur út úr prófkjörinu verði sterkur og samstilltur hópur sem er tilbúinn að vinna fyrir hagsmunum Vestmannaeyja og leiða bæinn áfram.
Ég meina það af öllu hjarta þegar ég segi: Ég elska Vestmannaeyjar. Nú leita ég eftir trausti Eyjamanna til að taka næsta skref og leggja mitt af mörkum sem kjörinn fulltrúi. Ég heiti því að framganga mín verður áfram í takt við þau orð.
Ég óska eftir stuðningi í 3.sæti.
Jarl Sigurgeirsson