Samfylkingin stærst í Suðurkjördæmi
Oddvitar flokkanna (sem sæti eiga á þingi) í Suðurkjördæmi. Mynd/samsett
​Nýverið birtust niðurstöður úr nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og eru helstu breytingar milli mælinga að fylgi Samfylkingarinnar eykst um nær þrjú prósentustig og fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um næstum tvö prósentustig. Fylgi annarra flokka breytist lítið eða á bilinu 0,2-0,8 prósentustig og eru breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar fyrir utan lækkun hjá Sósíalistaflokki. 

Tæplega 35% kysu Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag og er það sama hlutfall og Samfylkingin hefur mest mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup, í febrúar 2008. Nær 19% kysu Sjálfstæðisflokkinn, hátt í 15% Viðreisn, tæplega 11% Miðflokkinn og næstum 7% Flokk fólksins. Nær 5% kysu Framsóknarflokkinn en fylgi hans hefur ekki mælst lægra síðan mælingar Gallup hófust í júní 1992. Tæplega 4% kysu Pírata, ríflega 3% Vinstri græn, rösklega 2% Sósíalistaflokk Íslands og tæplega 1% aðra flokka. Liðlega 7% myndu skila auðu eða ekki kjósa og rúmlega 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Rúmlega 65% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina, sem er rösklega tveim prósentustigum meira en í síðasta mánuði.

​Samfylking upp fyrir Sjálfstæðisflokk frá síðustu mælingu

Það er RÚV sem deilir niðurstöðunum þjóðarpúlsins með Eyjafréttum. Þar sést einnig fylgið í hverju kjördæmi fyrir sig. Í Suðurkjördæmi mælist Samfylkingin stærst með 25,​7%.​ og bætir við sig 1,6% milli mælinga. Næstmest fylgi í kjördæminu hefur S​jálfstæðisflokkurinn sem mælist nú með 24,​8%. Flokkur Fólksins er þriðji stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi með 1​4,​1%.

Miðflokkur nýtur stuðnings 1​1,5%. Viðreisn mælist með samkvæmt könnuninni ​8,9% fylgi í Suðurkjördæmi​ og Framsókn er með ​8,​2%. Aðrir flokkar mælast með undir 4% fylgi í kjördæminu.

Nýjustu fréttir

Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.