Samgöngur og atvinna eru forsendur búsetu
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, var þriggja og hálfs árs Eyjapeyi þegar Heimaeyjargosið byrjaði 23. janúar 1973. Bækur föður hans prýða ráðherraskrifstofuna. Ljósmynd/GE

„Ég var þriggja og hálfs árs upp á dag þegar eldgosið hófst í Heimaey þann 23. janúar 1973. Ég man aðeins eftir gosnóttinni og flóttanum frá Eyjum, Ég horfði á gosið út um stofugluggann heima, sá bjarma í fjarska og svo man ég eftir mörgu fólki niðri við höfn. Fólk með svarta plastpoka, líklega fulla af dóti koma líka upp í hugann,” segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, sem er fæddur 23. júlí 1969 í viðtali við Guðna Einarsson í blaði Eyjafrétta sem koma út á morgun.

Hann er sonur Guðjóns Ármanns Eyjólfssonar (1935-2020) og Aniku Jónu Ragnarsdóttur (f. 1934). Guðjón var fyrsti skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum og síðar skólameistari Stýrimannaskólans í Reykjavík og rithöfundur. Anika Jóna, húsfreyja og sjúkraliði, er frá Lokinhömrum og Hrafnabjörgum í Arnarfirði, einum afskekktasta stað á Íslandi.

Systkini Eyjólfs eru þau Ragnar Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, var þriggja og hálfs árs Eyjapeyi þegar Heimaeyjargosið byrjaði 23. janúar 1973. Bækur föður hans prýða ráðherra skrifstofuna. Ljósmynd/GE heiður (f. 1963), Ragnar (f. 1965) og Kristín Rósa (f. 1972). Guðjón og Anika Jóna byggðu einbýlishús við Kirkjubæjarbraut 21 á árunum 1963-1966. Heimili þeirra stóð beint fyrir ofan tjörnina Vilpu. Nú er Kirkjubæjarbraut 17 austasta hús við götuna og svo tekur við hraunið sem hylur bernskuheimili Eyjólfs.

Einnig ræðir Eyjólfur hitamál í stjórnmálum dagsins í dag.

Nánar í næsta blaði Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Bæjarráð samþykkir breytingar á reglum um heimgreiðslur
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13. mars
Alexandra Ósk framlengir við ÍBV
Bifreið hafnaði á járngirðingu við Kirkjuveg
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug
Gugusar fimmti tónlistamaðurinn á Hljómey
Tónlistarsköpun fyrir ungmenni í Féló
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.