SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023

SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2023. Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.

Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti sunnudaginn 4. febrúar nk. Tilnefningar berist á netfangið menntaverdlaun@sudurland.is

Verðlaunin verða nú veitt í 16. sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs, sem og formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands 15. febrúar nk.

Nýjustu fréttir

Eló heldur tónleika í Eyjum
Þórunn Sveinsdóttir VE kveður Eyjar
Rauði krossinn í Eyjum fagnaði 85 árum með opnu húsi
Sveiflur í veðri og ógnar brim
Gul viðvörun – Austanhríð
Kristín Klara lék í sigri Íslands á Serbíu
Þar sem andinn er góður og stemningin í klefanum frábær
Bílaumboðið Una selur XPENG bíla á Íslandi 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.