Segja enga innstæðu fyrir auknum strandveiðum
Fréttatilkynning frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
23. apríl, 2025
Landað í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Frestur til að sækja um leyfi til strandveiða rann út á miðnætti og Fiskistofa hefur gefið út leyfi fyrir 684 báta. Miðað við þann fjölda er ljóst að engar aflaheimildir verða til staðar svo standa megi við það loforð stjórnvalda að strandveiðibátar megi sækja sjó í 48 daga. Ætla má að aflinn verði 25 þúsund tonn ef allir ná sínum dagskammti, sem er 774 kg. Miðað við 670 kg strandveiðiafla á dag má ætla að um 21 þúsund tonn komi að landi. Verði nýtingin á dögum um 70% má gera ráð fyrir að aflinn verði á bilinu 15 til 18 þúsund tonn. Sama hver niðurstaðan verður þá er ljóst að það stefnir í gríðarlega aukningu á afla strandveiðibáta, segir í tilkynningu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Enn fremur segir að atvinnuvegaráðuneytið hafi ekki til umráða þau tonn sem þarf til að hægt sé að standa við loforð stjórnvalda um auknar strandveiðar. Þetta var raunar ljóst um miðjan desember því í minnisblaði ráðuneytisins vegna stjórnarmyndunar kom fram að þorski hefur verið úthlutað langt umfram heimildir undanfarin ár. Sú úthlutun hefur einvörðungu átt sér stað innan 5,3% kerfisins, meðal annars vegna strandveiða. Í því felst að aflahlutdeildarhafar hafa borið skarðan hlut frá borði. Sú ráðstöfun fer beinlínis í bága við lög um stjórn fiskveiða og hefur umboðsmaður Alþingis nú tekið til meðferðar þessa stjórnsýsluframkvæmd. Telja má auðsýnt að hin ólögmæta framkvæmd hafi bakað íslenska ríkinu bótaskyldu.

„Við blasir sú staðreynd að atvinnuvegaráðherra hefur ekkert aflamagn til ráðstöfunar og lítið sem ekkert svigrúm innan 5,3% kerfisins til að bregðast við þeirri óhjákvæmilegu aukningu í afla sem strandveiðar munu þurfa í sumar. Því verður að telja það ábyrgðarhluta af hálfu ríkisstjórnarinnar að hafa lofað 48 dögum í strandveiðar, ekki síst þegar fyrir liggur að staðan var ríkisstjórninni ljós strax í stjórnarmyndunarviðræðunum í desember. Nú getur atvinnuvegaráðherra ekki lengur skirrst við og talað sig í kringum hlutina. Það er löngu tímabært að ráðherra upplýsi hvaðan þessi aukning eigi að koma. Varla verður það raunin að ráðherra brjóti viljandi lög og baki þar með íslenska ríkinu bótaskyldu af ásetningi,” segir í tilkynningunni.

Nánar má lesa um þetta á heimasíðu SFS

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst