Rannsóknir og vöktun á lundastofninum sýna að lunda hefur fækkað mikið við Íslandsstrendur síðustu 30 ár. Af þeim ástæðum biðla Náttúruverndarstofnun og umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið til veiðimanna og veitingageirans að gæta hófs við lundaveiðar og sölu á lundakjöti. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá áðurnefndri stofnun og ráðuneyti.
Jafnframt segir í tilkynningunni að við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir lundastofninn hafi Náttúrverndarstofnun, áður Umhverfisstofnun fengið tvo óháða sérfræðinga, Dr. Fred A. Johnson og Dr. Carl Walters, til að rýna gögn Náttúrustofu Suðurlands og hugsanleg áhrif veiða á lundastofninn.
Helstu niðurstöður eru þær að langtímafækkun lundastofnsins á Íslandi sé líklega vegna uppsafnaðra áhrifa veiða og óhagstæðra umhverfisaðstæðna, til að mynda hás sjávarhita. Hlýskeið í Atlantshafi síðustu þrjá áratugi hefur valdið því að minna framboð er af helstu fæðu lundans. Niðurstöður þeirra Johnson og Walters eru að áframhaldandi veiðar, sambærilegum þeim sem hafa áður verið, séu líklegar til að valda frekari rýrnun stofnsins.
Stór hluti af lundaveiðiafla hvers árs er seldur til veitingahúsa og því eru veiðimenn hvattir til að gæta hófs við veiðar. Biðlað er til veitingahúsa að skoða til hlítar hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli í ljósi þess hve stofninn er viðkvæmur og veiðar úr honum geti því ekki talist sjálfbærar.
Unnið er að nýju stofnlíkani þar sem tekið verður tillit til sjávarhita og veiðiþols stofnsins, með það að markmiði að hægt verði að spá fyrir um æskilega veiði með nokkurra ára fyrirsjáanleika. Slík nálgun er til þess að fallin að stuðla að sjálfbærum veiðum í framtíðinni, en ólíklegt þykir að stofninn þoli veiðar af því magni að þær standi undir reglulegri sölu til veitingahúsa, segir í tilkynningunni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst