Segjast ekki geta afhent gögnin
HS_veit_IMG_7380_tms_cr
HS Veitur. Eyjafréttir/Eyjar.net TMS

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest móttöku kæru Vestmannaeyjabæjar á hendur Orkustofnun fyrir að svara ekki ítrekuðum beiðnum um rökstuðning og upplýsingar um allar þær hækkanir sem lágu til grundvallar við samþykkt gjaldskrárhækkana HS Veitna á heitu vatni í september og janúar.

Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs frá fundi þess í síðustu viku.

Þá var einnig send kvörtun til ráðuneytis umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis til að kanna hvort stjórnsýsluhættir stofnunarinnar teldust eðlilegir. Strax í kjölfarið barst svar frá Orkustofnun um að hún geti ekki afhent umbeðin gögn. Ekki hefur þó enn borist svar frá ráðuneyti varðandi beiðni um aðgang að gögnum sem HS Veitur telja vinnugögn og viðkvæmar fjárhagsupplýsingar.

Nýjustu fréttir

Bleikur blær í Skipalyftunni
Fallegur dagur — nýtt myndband
Sveigjanleikinn skiptir mestu máli 
Bleikar kræsingar í morgunkaffinu hjá Vinnslustöðinni
Rúmlega 1,6 milljónir til góðra málefna eftir metkvöld í Höllinni
Afköstin meiri í fjarvinnu
Ein ferð til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjarnar lönduðu 69 tonnum eftir stutta túra vegna brælu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.