Skákþingi Vestmannaeyja 2020 lauk miðvikudaginn 4. mars síðast liðinn. Mótið hófst 16. Janúar sl., keppendur voru tíu talsins, níu umferðir voru leiknar og tími 60 mín. + 30 sek. á leik. Tók hver umferð að jafnaði 2-3 klukkustundir. Teflt var í skákheimili TV við Heiðarveg á miðvikudagskvöldum og einnig ef með þurfti á eftir hádegi á sunnudögum. Flestir keppendur eru með alþjóðleg skákstig.
Sigurvegari á skákþinginu var Sigurjón Þorkelsson (1969 stig) , með 8 vinninga, 2. sæti Arnar Sigurmundsson, (1651) með 6,5 vinninga, og í 3. Sæti Hallgrímur Steinsson (1796) með 6 vinninga og jafnir í 4.-5. Sæti urðu Einar B. Guðlaugsson (1861) og Stefán Gíslason (1722) með 5,5 vinninga. Keppendur voru á öllum aldri, þeir elstu vel yfir sjötugt, en þeir yngstu 11 og 12 ára.
Sigurjón Þorkelsson var vel að sigrinum kominn og sýndi mikið öryggi allt mótið. Er þetta í 14 skipti sem Sigurjón Þorkelsson verður Skákmeistari Vestmannaeyja.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.