Síldarvertíðin hafin hjá Vinnslustöðinni
Góð byrjun og fín gæði á fyrstu Íslandssíldinni sem Gullberg VE landaði
4. nóvember, 2025
Gullberg VE
Við komuna til Eyja í gær. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Gullberg VE kom í gær til Eyja með fyrsta síldarfarm vertíðarinnar, alls um 860 tonn af fallegri Íslandssíld í góðum gæðum.

Í samtali við vef Vinnslustöðvarinnar segir Jón Atli Gunnarsson, skipstjóri á Gullbergi VE, að byrjunin hafi verið góð og aflinn fínn miðað við árstíma. „Við fengum um átta hundruð og sextíu tonn í þremur holum,“ segir Jón Atli.

Síldin gengur innarlega

„Við fengum um átta hundruð og sextíu tonn í þremur holum,“ segir Jón Atli. „Þetta er svona hefðbundin vertíðarsíld.“ Hann segir að síldin hafi verið að ganga nokkuð innarlega miðað við undanfarin ár.

„Við vorum þarna á svæði sem menn kalla hefðbundna slóð, og það hefur verið dálítið sérstakt núna. Það virðist vera talsvert af síld þar sem við erum farin að nálgast 12 mílna mörkin. Við erum ekkert að trolla þar inn á við, en það verður bara að koma í ljós á næstu dögum hvernig þetta þróast — hvort síldin ætlar að halda sig þar inni eða færa sig utar.“

Spurður hvenær hann reikni með að fara aftur segir Jón Atli að það ráðist af því hvernig gengur að vinna aflann. „Við byrjum strax í löndun, en það er verið að flapsa (samflök) þetta, þannig að það tekur sinn tíma. Það gæti orðið miðvikudagskvöld eða jafnvel komið fram á fimmtudag áður en við förum aftur.“

Jón Atli segir að byrjunin lofi góðu og að áhöfnin sé bjartsýn á framhaldið. „Þetta er bara góð byrjun. Við fylgjumst núna með því hvernig síldin hagar sér næstu vikurnar — hvort við finnum hana reglulega á þessum hefðbundnu slóðum. Ef svo er, þá verður þetta fín vertíð.“

Góð gæði

Að sögn Benónýs Þórissonar, framleiðslustjóra VSV, hefur síldin sem kom með Gullbergi reynst mjög góð, bæði í stærð og gæðum.

„Þetta er síld í 290–300 gramma meðalstærð og mjög góð í gæðum,“ segir Benóný. „Manni finnst hún jafnvel betri núna en oft áður í þessari Íslandssíld. Þetta lofar góðu fyrir framhaldið.“

Hann segir að mest af síldinni fari í flakaða framleiðslu og að ferlið gangi afar vel. „Þetta fer nánast allt í flakaða framleiðslu. Þegar við flökum svona síld fer afskurðurinn í bræðslu sem er svona 50/50, þannig að þetta gengur mjög vel í gegnum vinnsluna,“ útskýrir hann.

Að sögn Benónýs fer vinnslan hratt fyrir sig. „Við erum að vinna þetta í einum til tveimur sólarhringum, þannig að þetta verður fljótt afgreitt,“ segir hann.

Benóný bætir við að andinn í vinnslunni sé góður og starfsfólk ánægt að vertíðin sé hafin. „Það er alltaf ákveðin spenna og stemning þegar fyrsta síldin kemur í hús. Þetta er góð byrjun og við hlökkum til framhaldsins.“

Hér að neðan má sjá myndband af komu Gullbergsins til Eyja í gær, auk þess sem áhöfn Hugins VE gerir skipið klárt á síldveiðar.

Play Video
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.