Sjá um gangbrautavörslu í skammdeginu
Ljósmynd/úr safni

Nemendur í 10. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja hefja á mánudaginn næstkomandi gangbrautavörslu við nokkrar fjölfarnar gangbrautir í Vestmannaeyjum. Verkefnið miðar að því að auka öryggi yngri nemenda á leið sinni í skólann og hvetja elstu nemendur til að taka þátt í samfélagsmálum á ábyrgan og jákvæðan hátt.

Í tilkynningu frá Grunnskóla Vestmannaeyja og Landsbankanum segir að þetta sé í áttunda sinn sem nemendur 10. bekkjar taki þátt í verkefninu, sem mun standa út febrúar 2026. Lögreglan í Vestmannaeyjum verður áfram með reglubundið eftirlit við skólana og til taks ef þörf krefur.

„Gangbrautirnar sem nemendur vakta eru á Skólavegi, Kirkjuvegi við Vallargötu og við Hraunbúðir. Gangbrautaverðirnir verða vel sýnilegir í gulum vestum og munu leggja sig fram við að aðstoða yngri nemendur í umferðinni.

Líkt og áður styður Landsbankinn verkefnið með veglegum styrk í ferðasjóð 10. bekkja í GRV og útvegar jafnframt vesti fyrir gangbrautaverðina. Með þessu framlagi vill Landsbankinn leggja sitt af mörkum til að efla öryggi barna og unglinga í umferðinni í Vestmannaeyjum.

Við í Grunnskóla Vestmannaeyja þökkum Jóni Óskari Þórhallssyni, útibússtjóra Landsbankans í Vestmannaeyjum, kærlega fyrir gott og farsælt samstarf,” segir jafnframt í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.