Sjálfstæðisflokkur vill ferjusiglingar inn í þjóðvegakerfið
25. febrúar, 2013
Landsþing Sjálfstæðisflokksins fór fram í Laugardalshöll um helgina en um 1700 fulltrúar úr öllum landshornum sóttu þingið. Meðal þeirra voru um 40 fulltrúar frá Vestmannaeyjum en hópurinn lagði fram tillögu á þinginum um samgöngur á sjó. Tillöguna má lesa hér að neðan en hún var samþykkt nánast einróma og er nú orðin hluti af stefnu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu.