Sjómannadeilan leyst?
Samningar hafa tekist á milli sjómanna og útgerðarmanna og skrifuðu þeir undir kjarasamning á þriðja tímanum í nótt í Karphúsinu. Vísir.is greinir frá.
Sjómenn hafa verið í verkfalli í tvo mánuði en �?orgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegsráðherra, fundaði með deiluaðilum í sitthvoru lagi í kvöld.
Hún lagði fram málamiðlunartillögu og eftir fundi sína með ráðherra héldu útgerðarmenn og sjómenn í Karphúsið þar sem þeir freistuðu þess að klára samninga. �?að hefur nú tekist og er verkfalli sjómanna þar með lokið en samkvæmt heimildum fréttastofu eru samningarnir án aðkomu ríkisins.
�?að má því ætla að flotinn, sem legið hefur við bryggju síðustu tvo mánuði, haldi von bráðar út á miðin en í vikunni var loðnukvótinn aukinn um 184 þúsund tonn. Loðnan stoppar hins vegar stutt við; hún hrygnir eftir um mánuð og deyr svo en þar sem verkfallinu er nú lokið ætti aflinn að nást í net.
Samningar verða kynntir félagsmönnum áður en þeir fara í atkvæðagreiðslu. Gert er ráð fyrir að henni ljúki á sunnudagskvöld.

Nýjustu fréttir

Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
ÍBV sækir Hauka heim
Eyþór Harðarson efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.