Tilraunboranir eftir sjó eru hafnar að Hlíðarvegi 4, þar sem malbikunarstöðin stóð áður. Um er að ræða fyrsta skrefið í að hita upp bæinn með sjóvarmadælum. �??�?etta er bara tilraunaborhola þar sem við erum að kanna leka og jarðlög og athuga hvort ekki sé nægan sjó að fá á þessu svæði,�?? sagði Ívar Atlason, forstöðumaður tæknideildar HS Veitna í Vestmannaeyjum. Ef þessi tilraunaborun gefur jákvæða niðurstöðu verða vinnsluholur boraðar með bornum Sögu frá Jarðborunum.
�??�?að er miklu stærra borverkefni en þessi tilraunahola sem við erum að bora núna. Ef við fáum ekki nægan sjó á þessu svæði verðum við að leita annars staðar en best væri að þetta væri allt á sama stað.�??
Til að hita upp allan bæinn þarf um 550 sekúndulítra af sjó á varmadælurnar. Áætlaður kostnaður er liðlega einn milljarður og gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki fyrir lok næsta árs. Á móti kemur styrkur ríkissjóðs að upphæð 300 milljónir.
Eins og sjá á mynd frá HS Veitum kom nokkur sjór upp úr tilraunaholunni.
Nánar í Eyjafréttum.