Heimilishundur réðst á húsbónda sinn
Mynd - Lögreglan í Vestmannaeyjum

Undir kvöld þann 19. ágúst sl. var lögregla kölluð að húsi hér í bæ en þar hafði heimilishundur af Alaska Malamute tegund ráðist á húsbónda sinn, sem er kona á fertugsaldri, og beit hann í andlit og aðra höndina. Konan var með töluverða áverka við augu og var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar. Að ósk eiganda hundsins verður hundurinn aflífaður.

Rúðubrot í Safnaðarheimili
Síðdegis þann 14. ágúst sl. var lögreglu tilkynnt um rúðubrot í Safnaðarheimili Landakirkju en um var að ræða fjórar rúður sem voru brotnar. Talið er að rúðurnar hafi verið brotnar daginn áður en ekki er ljóst hver eða hverjir þarna voru að verki. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um þá sem þarna voru að verki eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.

GPS staðsetningartæki stolið úr bifreið
Í vikunni var tilkynnt um þjófnað á Garmin GPS staðsetningartæki sem stolið var úr bifreið. Er talið að þjófnaðurinn hafi átt sér stað yfir Þjóðhátíðina en ekki er ljóst hvar bifreiðin var þegar þjófnaðurinn átti sér stað.

Tveir skipverjar á smábáti handteknir
Tvö fíkniefnamál komu upp í vikunni og var í báðum tilvikum um að ræða smáræði af kannabisefnum sem voru haldlögð. Málin teljast að mestu upplýst.
Í síðustu viku voru tveir skipverjar á smábáti handteknir, en Eyjafréttir sögðu frá málinu og lánaði lögreglan tollgæslunni fíkniefnahundinn. Skipverjarnir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við stjórn bátsins. Málið er í rannsókn og er beðið niðurstöðu blóðrannsóknar.

Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en um er að ræða vanrækslu á að hafa öryggisbelti spennt í akstri og akstur gegn einstefnu.

 

Nýjustu fréttir

Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Fimmti flokkur drengja ÍBV tók þátt í N1 mótinu á Akureyri
Skipaumferð setti svip á höfnina í dag
Eyjasundinu flýtt vegna veðurs

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.