Síðustu daga hafa nemendur í Hamarsskóla tekið áhersluna af námsbókunum og verið með þemadaga, þar sem þemað er ævintýri.
Í dag fimmtudaginn 5. maí verður Skóladagur Hamarsskóla frá kl. 16:00 – 18:00, þar sem afrakstur þessara daga og vinna nemenda verður til sýnis. Hver og einn árgangur verður að auki með atriði á sal, tímasetningar á því verða auglýstar síðar.
4. bekkur verður með grillaðar pulsur til sölu á vægu verði í fjáröflunarskyni. Kennarar og nemendur sýna ykkur skólann, kennslustofurnar og öll þau skemmtilegu verkefni sem þau hafa unnið í vetur.