Skora á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða tillögur sínar
Bæjarstjórn Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Á síðasta fundi bæjarstjórnar fór Íris Róbersdóttir, bæjarstjóri yfir umsögn Vestmannaeyjabæjar um veiðigjaldafrumvarp atvinuvegaráðherra og vinnu Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, fundi og greiningar á vegum samtakanna.

Á fundinum var lögð fram sameiginleg bókun bæjarstjórnar sem í segir að bæjarstjórn taki undir umsögn og bókun bæjarráðs frá 26. maí sl. og gerir athugasemdir við þann stutta tíma sem gefinn er til samráðs og samtals við sveitarfélögin og þau áhrif sem frumvarpið, verði það samþykkt, mun það hafa á rekstur og starfsemi sjávarútvegssveitarfélaga.

Ekki liggur fyrir mat frá stjórnvöldum á fjárhagslegum og samfélagslegum áhrifum sem frumvarpið mun leiða af sér en líklegt er að breytingin skerði samkeppnisstöðu sjávarútvegsfyrirtækja í Eyjum. Þetta gæti haft veruleg áhrif á atvinnulíf og fjárfestingu í bænum og auk þess valdið skerðingu á tekjustofnum sveitarfélagsins sem veikir stöðu þess.

Bæjarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að endurskoða tillögur sínar um hækkun veiðigjalda og byggja á vandaðri greiningu á raunverulegum áhrifum á sveitarfélögin. Slíkar breytingar þarf að vinna í samráði við sveitarfélög og atvinnulíf og taka í þrepum.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.