Skráning hafin í Vestmannaeyjahlaupið
Kári Steinn kemur í mark í fyrsta Vestmannaeyjahlaupinu 2011.

Opið er fyrir skráningu í Vestmannaeyjahlaupið sem haldið verður laugardaginn 7. september. Boðið verður upp á tvær vegalengdir, annars vegar 5 km og hins vegar 10 km.

Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin klukkan 13:00. Keppnisgögn verða afhent upp í Íþróttamiðstöð milli klukkan 17:00-19:00 kvöldið áður og hefst sameiginleg upphitun 25 mínútum fyrir hlaup.

Allur ágóði til góðgerðarmála
Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið. Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd. Einnig verða veitt aldursflokkaverðlaun. Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Mótshaldarar hvetja þá sem koma ofan af landi til að bóka ferðina í Herjólf tímanlega. Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is og einnig er hægt að fylgjast með á Facebook. Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.

Nýjustu fréttir

Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Bærinn vissi ekki af úttektinni á Hraunbúðum
Lottóappið heldur áfram að gleðja landsmenn!
Omar Sowe fær tveggja leikja bann
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.