Stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lýsir yfir þungum áhyggjum af áhrifum mögulegs loðnubrests á íslenskt efnahagslíf. Ekki síst gætir áhrifanna hjá íbúum og fyrirtækjum í sveitarfélögum þar sem uppsjávarvinnsla er ein af meginstoðum atvinnulífsins. Svona hefst bókun sem samþykkt var á stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á þriðjudaginn sl.
Í bókuninni segir enn fremur að ef ekki verði loðnuvertíð á næsta ári verður það annað árið í röð sem tekjutap af þeim völdum dynur yfir þessi sveitarfélög og samfélagið allt hér á landi. Jafnframt mun það hafa mjög neikvæð áhrif á hagvöxt á næsta ári sem er grafalvarlegt.
„Haustmælingar á loðnu gáfu þó vísbendingar um að hægt verði að gefa út upphafskvóta og því leggja Samtök sjávarútvegssveitarfélaga mikla áherslu á að Hafrannsóknastofnun verði fjárhagslega undir það búin að fara í öflugar bergmálsmælingar í byrjun næsta árs til að hægt sé að ganga úr skugga um hvort ekki sé hægt að heimila þessar þjóðhagslega mikilvægu veiðar. Það er skýlaus krafa sjávarbyggða á Íslandi að ríkisvaldið sjái til þess að jafn mikilvæg stofnun og Hafrannsóknastofnun sé fullfjármögnuð og gert kleift að halda úti öflugum rannsóknum á fiskistofnum þjóðarinnar til að hægt sé að tryggja sjálfbærar veiðar sem skipta sköpum fyrir íslenskt efnahagslíf,” segir í bókun samtakanna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst