Dumbungur skyggði á sólmyrkvann í Eyjum
Sólin lét ekki sjá sig þegar myrkvinn náði hámarki – Dagsbirtan minnkaði og um stund var eins og húmaði að kveldi
Fólk safnaðist saman við suðurströnd Heimaeyjar í von um að sjá sólmyrkvann. Þykk ský og þoka byrgðu sýn, en greinilega dimmdi yfir Eyjum þegar myrkvinn náði hámarki. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Dumbungur var yfir Vestmannaeyjum klukkan 17.50 í dag þegar sólmyrkvinn náði hámarki. Skýin höfðu þar betur í baráttunni við sólina og ekkert sást til hennar þegar hæst stóð.

Þrátt fyrir það fór myrkvinn ekki alveg fram hjá Eyjamönnum. Greinilega dró úr dagsbirtunni þegar tunglið huldi 99,6 prósent sólarskífunnar. Um stund var eins og húmaði að kveldi þótt enn væri síðdegi.

Vonir höfðu staðið til þess að glenna gæti myndast yfir Eyjum þegar nær drægi hámarki myrkvans, en þær vonir rættust ekki. Áhugafólk um stjörnufræði var þó tilbúið við Breiðabakka með búnað ef sólin léti sjá sig.

Veðrið hafði því síðasta orðið að þessu sinni. Þótt sjálf sólin væri falin á bak við skýin mátti engu að síður finna fyrir þessum sjaldgæfa viðburði þegar skyndilega dimmdi yfir bænum – rétt eins og kvöldið væri komið nokkrum klukkustundum of snemma.

Myrkvinn sást hins vegar vel annars staðar á landinu. Með fréttinni fylgja myndir frá Óskari Pétri, sem var á Grundarfirði þegar myrkvinn gekk yfir, auk myndbands sem Malín Erla Brynjólfsdóttir tók (hægt er að stækka það með því að smella á takkann lengst til hægri undir myndbandinu). Einnig eru nokkrar myndir teknar suður á eyju þar sem þó nokkrir fylgdust með. Þá má sjá mynd af myrkvanum við Bolafjall, tekin af sjónvarpsskjá RÚV, þar sem aðstæður til að fylgjast með þessum einstaka viðburði voru öllu betri en í Eyjum.

 

Nýjustu fréttir

Dumbungur skyggði á sólmyrkvann í Eyjum
Fyrsta sýning Oddnýjar á heimaslóðum
Nú reynir á hvort birtir til eða ekki
Ríkið unir niðurstöðunni
Rannsóknarholan komin niður á 180 metra
Eyjamenn gera sig klára fyrir Reykjavíkurmaraþonið
Almyrkvinn blásinn af á Helgafelli – „Kannski verður blíða árið 2196
Vonast eftir glennu þegar sólmyrkvinn verður í hámarki
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.