Rannsóknarholan komin niður á 180 metra
Stefnt er að því að halda borun áfram niður á um 300 metra dýpi
default
Karl Prins í Landeyjasandi í Rangárþingi Eystra. Ljósmynd/eyjagöng.is

Borun rannsóknarholunnar EG-02 á Landeyjasandi hefur nú náð 180,5 metra dýpi. Borunin er liður í gagnaöflun Eyjaganga ehf. vegna kortlagningar jarðlaga meginlandsmegin. Frá þessu er greint á vefsíðu Eyjaganga.

Þar segir jafnframt að Ræktunarsamband Flóa og Skeiða annist borunina en verkfræðistofan EFLA og jarðfræðistofan Völuberg sjá um eftirlit, faglega umsjón og rannsóknarráðgjöf.

Í upphafi var holan fóðruð niður á 41 metra dýpi til að styðja við laus yfirborðslög. Síðan hefur verið borað í fastan berggrunn.

Sýni úr holunni verða send til greiningar þar sem meðal annars verður lagt mat á bergstyrk, sprunguþéttleika og lekaeiginleika. Niðurstöðurnar verða nýttar ásamt gögnum úr rannsóknarholunni EG-01 í Vestmannaeyjum og endurvarpsmælingum í Eyjasundi við gerð heildstæðs jarðfræðilíkans af svæðinu.

Stefnt er að því að bora holuna niður á um 300 metra dýpi. Áætlað er að fýsileikamat vegna mögulegra jarðganga milli lands og Eyja liggi fyrir í lok árs, segir í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Sjónarhorn flakkarans á nýja hrauninu
Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar
Íslenska neiið fer um heiminn – fiskurinn í aðalhlutverki
Vestmannaeyjahlaupið fer fram á laugardaginn
Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.