Nú reynir á hvort birtir til eða ekki
Áhugasamir fylgjast með deildarmyrkvanum í Eyjum 2015.

Hellirigning þegar um klukkustund er í sólmyrkvann – Von um bjartara veður þegar myrkvinn nær hámarki klukkan 17.50 – Upplifunin verður sérstök þótt skýin haldi velli

Nú styttist í sólmyrkvann í Vestmannaeyjum en veðrið leikur ekki við Eyjamenn þessa stundina. Hellirigning er í Eyjum og þungbúið þegar um klukkustund er þar til myrkvinn hefst.

Vonin er þó ekki úti. Útlit er fyrir að dragi úr úrkomu þegar nær dregur og von um bjartara veður undir klukkan 18.00, þegar myrkvinn nær hámarki klukkan 17.50. Þá verður um 99,6 prósent sólarskífunnar hulin af tunglinu.

Þótt skýin opnist ekki ætti myrkvinn samt að setja mark sitt á síðdegið. Þegar svo stór hluti sólarinnar hverfur dregur verulega úr dagsbirtu og umhverfið tekur á sig óvenjulegan blæ. Það getur því orðið sérstök upplifun að fylgjast með birtubreytingunum þótt sólin sjálf sjáist ekki.

Hætt hefur verið við fyrirhugaðan „Hitting á Helgafelli“ vegna veðurs. Fulltrúi Stjörnufræðifélags Vestmannaeyja verður hins vegar á bílastæðinu neðan við Breiðabakka, tilbúinn með stjörnusjónauka með sólarfilmu ef glenna opnast.

Ef sést til sólar er mikilvægt að horfa aldrei beint á hana án viðurkenndra sólmyrkvagleraugna.

Nú er því bara að treysta á hið síbreytilega Eyjaveður. Góð glenna rétt fyrir klukkan sex væri kærkomin – en myrkvinn ætti að verða sérstök upplifun þótt skýin haldi velli.

 

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.