Ný menningarstefna Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2031 var kynnt 1. maí sl. og dregur fram hversu mikilvæg menning er fyrir lífsgæði samfélagsins. Stefnan er afrakstur samráðs við íbúa á öllum aldri, hagaðila og stofnanir og ber þess skýr merki að hlustað hafi verið á ólíkar raddir samfélagsins. Sú vinna skilar sér í vel mótaðri stefnu með framtíðarsýn að leiðarljósi.
Menning mótar samfélagið og styrkir tengsl fólks, menning er skilgreind sem lifandi afl sem sameinar sögu, sköpun og þátttöku og einmitt þar liggur styrkur Eyjanna.
Ein af meginstoðum stefnunnar er að skapa traustan vettvang fyrir allt menningarlíf.
Eldheimar og Safnahús Vestmannaeyja, sem hýsir Sagnheima, bókasafn, ljósmyndasafn, héraðsskjalasafn, fágætissal og listasafn ásamt því að reka Landlyst og Skanssvæðið, eru skilgreind sem miðstöðvar menningarlífs í Vestmannaeyjum. Þar sem miðlun, fræðsla og upplifun eiga að höfða til allra aldurshópa, innlendra sem erlendra. Á sama tíma er lögð rík áhersla á að nýta fjölbreytt rými til menningarviðburða og hvetja íbúa til þátttöku.
Í stefnunni er einnig lögð mikil áhersla á fjölbreytni, aðgengi og samvinnu. Viðburðir eiga að vera opnir öllum þegar kostur er, samstarf milli listgreina og stofnana verði eflt og nýir íbúar hvattir til virkrar þátttöku. Menning verður þannig sameiginlegt verkefni samfélagsins alls.
Við erum ótrúlega rík af fólki hér í Eyjum sem hefur sinnt menningarmálum og menningararfleifð okkar vel og því ber að þakka. Það líður varla sú vika þar sem ekki er eitthvað um að vera. Eftir , eftir samtal mitt við starfsfólk Safnahússins kom fram að á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa verið haldnir 13 viðburðir og þá eru laugardagsopnanir bókasafnins ekki taldar með en þar er ævinlega boðið upp á eitthvað spennandi.
Í menningarstefnunni er einnig skýr áhersla á að miðla sögu og menningararfi Vestmannaeyja á lifandi og framsækinn hátt. Tengsl við náttúru, sögu og tónlistararf Eyjanna eru dýrmæt og skulu nýtt til að styrkja sjálfsmynd samfélagsins og skapa menningartengda upplifun.
Sérstök áhersla er lögð á börn og ungmenni, þar sem menningaruppeldi er lykill að framtíðinni. Með stuðningi við barnamenningu, listnám og skapandi starf er tryggt að næsta kynslóð upplifi menningu sem sjálfsagðan og eðlilegan hluta af daglegu lífi. Fyrsta skrefið var stigið núna í apríl þegar fyrstu barnamenningardagarnir voru haldnir við frábærar undirtektir bæjarbúa.
Menningarstefna Vestmannaeyjabæjar er því ekki aðeins stefna á blaði, heldur sameiginleg framtíðarsýn um lifandi og skapandi samfélag.
Við í Sjálfstæðisflokknum vitum að hjarta samfélagsins slær í menningunni og því munum við áfram styðja við öflugt menningarlíf í Eyjum, samfélaginu öllu til heilla.
Hægt er að nálgast Menningarstefnu Vestmannaeyja hér:: Menningarstefna-2026.pdf
Aníta Jóhannsdóttir, formaður fræðsluráðs og varabæjarfulltrúi
Skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.