Strandveiðarnar komnar á fullt

Strandveiðitímabilið hófst í gær og var töluverð hreyfing í höfninni í Vestmannaeyjum í dag þegar bátarnir komu að landi með afla sinn eftir upphaf vertíðarinnar. Sjómenn hafa beðið eftir byrjun strandveiðanna með eftirvæntingu og nýttu margir fyrsta færið til að sækja sjó. Á bryggjunni í Eyjum var líf og fjör þegar bátarnir lönduðu afla sínum […]

Eigum við að láta blekkja okkur? Tækifærin fyrir landsbyggðirnar í Evrópusamstarfi

Þegar rætt er um Evrópusambandið er oft talað eins og hagsmunir landsbyggðarinnar og full aðild fari ekki saman. Fólki er sagt að byggðirnar muni tapa, landbúnaður veikjast og sjávarútvegurinn lenda í höndum annarra þjóða. Þetta er endurtekið svo oft af fólki sem er á launum við að sá tortryggni og ótta að það er skiljanlegt […]

ÍBV stelpurnar með þriðja sigurinn í röð

Kvennalið ÍBV í fótbolta vann sinn þriðja sigur í röð þegar þær unnu Val á Hlíðarenda 2-3, í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í dag.  Eyjastelpur byrjuðu leikinn betur og komust í 0-1 eftir um það bil tíu mínútur. Valskonur tóku þá hornspyrnu sem Olga Sevcova las og hún brunaði upp völlinn og kom boltanum […]

Milena í lokahóp u-16

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U-16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaela Patru, leikmann kvennaliðs ÍBV í fótbolta, í lokahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti í Finnlandi dagana 21.-28. maí nk. Milena, sem er sóknarmaður, hefur verið að fá tækifæri með meistaraflokki kvenna ÍBV þrátt fyrir ungan aldur ásamt því að leika með þriðja […]

Skýr framtíðarsýn í menningarmálum

Ný menningarstefna Vestmannaeyjabæjar fyrir árin 2026–2031 var kynnt 1. maí sl. og dregur fram hversu mikilvæg menning er fyrir lífsgæði samfélagsins. Stefnan er afrakstur samráðs við íbúa á öllum aldri, hagaðila og stofnanir og ber þess skýr merki að hlustað hafi verið á ólíkar raddir samfélagsins. Sú vinna skilar sér í vel mótaðri stefnu með […]

Mukka með nýtt lag – „So Close“

Mukka munu gefa út nýju smáskífuna „So Close“ þann 16. maí næstkomandi. Lagið er fyrsta útgáfan af væntanlegri plötu sveitarinnar, Study Life Nr. 5, sem kemur út árið 2027. Í tilefni útgáfunnar heldur sveitin forhlustunarpartý hjá föstudaginn 15. maí þar sem hljómsveitarmeðlimir munu einnig sjá um DJ-sett, segir í tilkynningu. Um lagið „So Close“ „So […]

Stórir fjárfestar og stéttarfélög bætast við hópinn á bak við Eyjagöng

Nýr hópur fjárfesta og stuðningsaðila hefur bæst við rannsóknarfasa Eyjaganga, samkvæmt tilkynningu frá Eyjagöngum ehf. Þar kemur fram að Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafi gengið til liðs við verkefnið sem hluthafar og þegar greitt fyrir hlut sinn. Styrkir aðkoma þessara aðila bæði […]

Vigdís Sigurðar tók þátt í SuperHalf hlaupaseríunni  

Vigdís Sigurðardóttir var ein þeirra tíu Vestmannaeyinga sem tóku þátt í svokölluðu SuperHalf hlaupi sem fram fór í Prag í mars síðastliðnum. Hlaupið er hluti af hlaupaseríunni SuperHalfs, sem samanstendur af fimm hálfmaraþonum í mismunandi borgum Evrópu.  Hugmyndin að baki seríunni er að sameina ferðalög og hlaup, þar sem áherslan er fyrst og fremst á […]

Fyrsta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn vorboði í snjókomunni

Herjólfur sigldi í gærkvöldi sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn eftir erfiðan kafla í samgöngum við Eyjar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var um borð í þessari langþráðu ferð. Stemningin lét ekki á sér standa þrátt fyrir snjókomu og kulda. Við bryggjuna rakst Óskar á Stjána á Emmunni sem beið í ferðabílnum sínum eftir að komast […]

ÍBV sækir Val heim í dag

Kvennalið ÍBV á krefjandi verkefni fyrir höndum í dag þegar liðið mætir Val í Bestu deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 16:30 á N1-vellinum á Hlíðarenda. Eyjakonur hafa farið vel af stað í sumar og sitja í 2. sæti deildarinnar með 6 stig, jafnar toppliði Breiðabliks, en með lakari markatölu. Valur hefur unnið annan af tveimur fyrstu […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.