Fyrsta ferð Herjólfs í Landeyjahöfn vorboði í snjókomunni
Herjólfur nálgast Landeyjahöfn. Sjá má dæluskipið Álfsnes fyrir utan höfnina. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Herjólfur sigldi í gærkvöldi sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn eftir erfiðan kafla í samgöngum við Eyjar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var um borð í þessari langþráðu ferð.

Stemningin lét ekki á sér standa þrátt fyrir snjókomu og kulda. Við bryggjuna rakst Óskar á Stjána á Emmunni sem beið í ferðabílnum sínum eftir að komast um borð.

„Hann flautaði á mig þegar hann sá mig mynda Herjólf og bauð mér inn í bílinn að fá mér hrossabjúgu sem hann hafði eldað þar,“ segir Óskar og hlær.

Ekki þurfti að tvísegja það

„Hrossabjúgu með kartöflum og rófum – hvað er hægt að hugsa sér betra? Sérstaklega þegar snjóar úti,“ segir hann. Þrátt fyrir vetrarlegt veður var ferðin ákveðinn vorboði fyrir Eyjamenn.

„Fyrsta ferð Herjólfs er okkar vorboði í snjókomunni,“ segir Óskar Pétur. Myndasyrpu frá ferðinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Reyktur lax frá Laxey til styrktar ÍBV handbolta
Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.