Mukka munu gefa út nýju smáskífuna „So Close“ þann 16. maí næstkomandi. Lagið er fyrsta útgáfan af væntanlegri plötu sveitarinnar, Study Life Nr. 5, sem kemur út árið 2027.
Í tilefni útgáfunnar heldur sveitin forhlustunarpartý hjá föstudaginn 15. maí þar sem hljómsveitarmeðlimir munu einnig sjá um DJ-sett, segir í tilkynningu.
„So Close“ fjallar um þá tilfinningu að vera sannfærður um að markmiðið sé innan seilingar — þó raunveruleikinn segi annað. Textinn fylgir manni sem eltir konu sem hefur engan áhuga á honum, á meðan hann sannfærir sjálfan sig um að hann sé við það að ná henni.
Útkoman er beitt og kunnugleg mynd af sjálfsblekkingu og bilinu milli skynjunar og raunveruleika.
Tónlistarlega blandar lagið saman sækadelísku poppi og rokki með skýrari poppáherslu en áður hefur heyrst frá sveitinni. Groovy taktur og grípandi viðlag keyra lagið áfram og undirstrika þróun Mukka í átt að hnitmiðaðri og melódískari hljómi.
„So Close“ er fyrsta innsýnin inn í næsta kafla sveitarinnar og gefur skýra mynd af því hvert Mukka stefna með komandi plötu.
Mukka er tilraunakennd hljómsveit frá sem blandar saman lo-fi rafhljóðum, sækadelísku rokki og kraut-innblásinni endurtekningu í dáleiðandi hljóðheim.
Sveitin var stofnuð árið 2017 af Guðmundi Óskari Sigurmundssyni og Kristjáni Hjaltested og hefur þróast úr dúói í fimm manna band með áherslu á lifandi og yfirgripsmikla tónleikaupplifun.
Mukka hafa vakið athygli fyrir sterka sviðsframkomu og komu meðal annars fram á árið 2025, auk þess að fylgja í Evróputúr sama ár.
Með vaxandi orðspori og síbreytilegum hljóðheimi eru Mukka að festa sig í sessi sem áhugaverð rödd á evrópsku experimental- og indie-senunni.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.