Stórir fjárfestar og stéttarfélög bætast við hópinn á bak við Eyjagöng
Borinn sem notaður er í fyrstu áfanga rannsóknarinnar. Ljósmynd/aðsend.

Nýr hópur fjárfesta og stuðningsaðila hefur bæst við rannsóknarfasa Eyjaganga, samkvæmt tilkynningu frá Eyjagöngum ehf.

Þar kemur fram að Eimskip, Olís, stéttarfélögin Drífandi, Jötunn og Verðandi, innviðasjóðurinn Innviðir fjárfestingar II slhf. og fjárfestingarfélagið MK 4 ehf. hafi gengið til liðs við verkefnið sem hluthafar og þegar greitt fyrir hlut sinn.

Styrkir aðkoma þessara aðila bæði fjárhagslegan grundvöll verkefnisins og faglegt bakland rannsóknarinnar.

Lífeyrissjóðir koma að verkefninu

Í tilkynningunni er sérstaklega vakin athygli á þátttöku Innviða fjárfestinga II slhf., sem er stýrt af Summu og fjármagnað nær eingöngu af íslenskum lífeyrissjóðum.

Sjóðurinn sérhæfir sig í fjárfestingum í samfélagslega mikilvægum innviðum og hefur áður komið að verkefnum á borð við kaup á Mílu, fjárfestingum í hjúkrunarheimilum og orkufyrirtækinu Reykjavík Geothermal.

Segir í tilkynningunni að aðkoma sjóðsins sé „skýr gæðastimpill á undirbúningsferlið“ enda búi stjórnendur hans yfir víðtækri reynslu af mati á stórum innviðaverkefnum.

Eimskip horfir til þjóðvegakerfisins

Eyjagöng ehf. segir þátttöku Eimskips einnig hafa sérstaka þýðingu þar sem fyrirtækið sé burðarás í íslenskum flutningum.

„Frá sjónarhóli Eimskips snúast Eyjagöng um að loka rofi í flutningskerfi landsins,“ segir í tilkynningunni. Með jarðgöngum yrðu Vestmannaeyjar í raun tengdar þjóðvegakerfinu með stöðugri og öruggari hætti en nú er.

Þá er bent á að öflug höfn í Vestmannaeyjum gæti nýst enn betur fyrir inn- og útflutning ef til landtengingar kæmi.

Olís nefnir afhendingaröryggi

Þátttaka Olís tengist meðal annars afhendingaröryggi eldsneytis og annarra nauðsynja til Eyja.

Í tilkynningunni segir að með jarðgöngum mætti draga úr veðurháðum sjóflutningum og auka bæði öryggi og hagkvæmni í þjónustu við fyrirtæki, útgerð og íbúa í Vestmannaeyjum.

Stéttarfélögin vilja rannsókn á áhrifum samgangna

Þá segir að aðkoma stéttarfélaganna Drífanda, Verðandi og Jötunar undirstriki mikilvægi þess að kanna áhrif mögulegra jarðganga á atvinnulíf og lífskjör í Eyjum.

Einnig er þátttöku MK 4 ehf., sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar og fjölskyldu hans, sérstaklega fagnað í tilkynningunni. Þar er rifjað upp að Magnús hafi lengi verið ötull talsmaður þess að kanna möguleika á jarðgöngum til Vestmannaeyja.

Fyrsti rannsóknarfasi fjármagnaður

Samkvæmt Eyjagöngum ehf. er verkefnið nú á fyrsta rannsóknarstigi þar sem meginmarkmiðið sé að safna gögnum og meta tæknilegan og fjárhagslegan fýsileika framkvæmda.

Haft er eftir Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga, að mikilvæg viðurkenning felist í því að bæði stórfyrirtæki og stéttarfélög vilji taka þátt í rannsóknarvinnunni.

„Við höfum nú safnað nægu fjármagni til að ljúka fyrsta fasa rannsóknarinnar og látum því staðar numið hér í bili,“ er haft eftir Haraldi í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Bókunarkerfi Herjólfs komið aftur í gagnið
Nám í fiskeldisfræði opnar margar dyr  
Nýtt blað Eyjafrétta komið út
Framboðin mætast í Eldheimum í dag
Fjölskylduafþreying í íþróttahúsinu
Sex ferðir í Landeyjahöfn á morgun
Ríkisstyrkt áætlunarflug til Eyja framlengt út mánuðinn
ÍBV á þrjá fulltrúa sem fara á Evrópumótið með u-18
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.