�?að er fyrsta aðgerð til að komast út úr kvótabraskskerfinu. �?á fer að færast líf í hafnir og bryggjur landsins, heimamönnum til gleði, einnig erlendum ferðamönnum sem hingað koma til að skoða samspil menningar og náttúru landans, því þá er hægt að bjóða ferðamönnum í sjóstangaveiði án þess að eiga kvóta.
Eyðilagðar uppeldisstöðvar og veiðarfæraval
Aukin notkun á togveiðarfærum hefur vond áhrif á umhverfið. Ekki aðeins eyða skipin meiri olíu heldur valda toghlerar og önnur botndregin veiðarfæri mikilli eyðileggingu á grunnslóð þar sem þau eru dregin yfir hraun og kóralbyggðir, uppeldisstöðvar og skjól seiðanna og kippa þannig forsendum undan framtíðarveiðum. Íslandshreyfingin leggur ríka áherslu á verndun hafs og stranda.
Við viljum takmarka aðgang snurvoðar og annarra veiðarfæra á grunnslóð þar sem þau skaða umhverfi veiðistofnana til frambúðar. �?að þarf að velja veiðarfæri rétt til að hámarka aflaverðmæti. �?eir markaðir sem greiða hæst verð fyrir fisk vilja ekki lengur kaupa fisk sem veiddur er í botnvörpu eins og dæmi eru um skötusel. Íslenskar sjávarafurðir hafa á sér gott orðspor og það ber að vernda með umhverfisvænum veiðum.
Afleiðingar af vondri stjórn
Kvótakerfið hefur valdið brottkasti á fiski sem talið er í milljörðum ár hvert vegna of lítils framboðs á veiðiheimildum sem aftur leiða af sér kvótaleigu sem viðheldur eins konar þrælahaldi í greininni og kemur í veg fyrir nýliðun. �?að er grátlegt að sjá leiguliðana og sjómenn þeirra lenda í þeirri ánauð að þurfa að leigja kvóta á allt að 200 krónur á þorskkíló, bera nánast ekkert úr býtum og sjá að lokum útgerðirnar fara í þrot meðan kvótaeigendur maka krókinn. Sú �?atvinnustarfsemi�? útheimtir oft einungis einn mann til starfa og sá maður borgar ekki skatta til samfélagsins því þetta eru fjármagnstekjur.
�?thlutun fiskikvóta hefur alltaf verið í höndum sjávarútvegsráðherra, með hliðsjón af ráðleggingum Hafrannsóknastofnunar, og hefur aldrei leikið vafi á um rétt hans til þeirra aðgerða. Umræða um að útgerðir hafi eignarhaldið er því út úr kortinu því stöðug afskipti samfélagsins af þessum verðmætum eru til staðar.
�?ví getur hefðarréttur aldrei myndast um kvóta. �?að er ekki sjálfgefið að nytjaleyfi leiði til eignaréttar. �?ess vegna er ekki hægt að selja veiðiheimildirnar. �?au kaup manna á milli í gegnum tíðina á þessum ímynduðu verðmætum í kvótalíki, varðar okkur í samfélaginu ekkert um. �?au viðskipti eru án samráðs við þjóðfélagið, gegn vilja settra laga og því alfarið á þeirra ábyrgð.
Sjálfræði yfir fiskimiðunum, þjóðareign
Fjöregg þjóðarinar, sjávarútvegurinn er í hættu vegna þessarar þróunar í greininni sem er enn um 60 % af landsframleiðslunni. �?að gæti breyst á einni nóttu. �?að þarf bara einfaldan meirihluta á alþingi Íslendinga til að leyfa erlendum fjárfestum að fjárfesta í íslenskri útgerð. Við þurfum að hafa það í huga, þegar þessi mál eru upp á pallborðinu, að ríkisstjórnarflokkarnir vilja í raun hleypa erlendum aðilum inn í útgerðina á næsta kjörtímabili, haldi þeir völdum eftir kosningarnar í vor.
Halldór Ásgrímsson sagði á Iðnþingi á síðasta ári, þá forsætisráðherra Íslands, að hann vildi sjá erlendar fjárfestingar í íslenskri útgerð. �?að verður stór veisla þegar hinir fáu útvöldu selja veiðiheimildirnar hæstbjóðanda á erlendum vettvangi.
Aflið til að stoppa þessa þróun eru kjósendur sem við í Íslandshreyfingunni leitum til. Komist Íslandshreyfingin í ríkisstjórn eftir kosningarnar 12. maí nk. verður þessi óheillaþróun stöðvuð.
Baldvin Nielsen, stýrimaður og hópferðabílstjóri í Reykjanesbæ, skipar 3. sætið fyrir Íslandshreyfinguna í Suðurkjördæmi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst