Skákmeistarinn Boris Spasský spurði hvort laust pláss væri við hlið Bobby Fischers í kirkjugarðinum að Laugardælum um leið og hann lagði blómsveig að leiði hans í dag.
Nafn Fischers verður ætíð tengt nafni Spasskýs, sem nú fékk loks tækifæri til að heiðra minningu þessa frægasta keppunautar síns við skákborðið.