Það var í ýmis horn að líta hjá lögreglu í vikunni sem leið, tvö fíkniefnamál komu upp auk þess sem lögreglan hafði í nógu að snúast vegna hinna ýmsu mála er tengjast aðstoð við borgarana. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum en eitthvað var þó um útköll á skemmtistaði bæjarins.