Stuðmenn, hljómsveit allra landsmanna, verður meðal þeirra sem koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um Verslunarmannahelgina. Hljómsveitin er að senda frá sér nýtt lag í vikunni sem er byggt á gömlum grunni og sérstakur gestur hljómsveitarinnar í því lagi er Patr!k Atlason eða Pretty Boy Tjokkjó.
Stuðmenn og Þjóðhátíð
Saga Stuðmanna er að mörgu leyti samofin sögu Þjóðhátíðar en lokakafli vinsælustu kvikmyndar Íslandssögunnar, Með allt á hreinu var að mestu leyti tekin upp á Þjóðhátíð árið 1982. Kvikmyndin sem er nánast eins og þjóðareign er sýnd á RÚV 17. júní hvert einasta ár. Fjórum árum eftir að, Með allt á hreinu var frumsýnd sneru Stuðmenn aftur á Þjóðhátíð en það ár voru öll fyrri aðsóknarmet slegin og fór fjöldin úr 3500 í um það bil 10.000. Þannig var tónninn settur að þeirri Þjóðhátíð sem flestir þekkja í dag sem hin risavaxna tónlistarhátíð sem hún er.
Nýja lagið
Ragnhildur Gísladóttir leiðir sveitina og lagið sem kemur út í næstu viku er endurgerð á laginu Fegurðardrottning sem fyrst var gefið út árið 1986. Endurgerðina unnu Stuðmenn í samstarfi við upptökustjórann Ásgeir Orra Ásgeirsson og eins og kom fram hér að ofan er PBT sérstakur gestur í laginu.
Smellið hér til að hlusta á lagið.
Fréttatilkynning.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst