Árið 2012, þegar sorporkustöð Vestmannaeyinga var lokað eftir hatramma baráttu við þáverandi umhverfisráðherra VG lá fyrir að sorpförgun í Eyjum yrði vandkvæðum bundin. Tekið var upp þriggja flokka flokkunarkerfi og ljóst að hluti af sorpinu okkar yrði að farga á öðrum stöðum en á Heimaey. Vegna legu okkar og takmarkaðra samgangna fór svo að hluti af bíladekki Herjólfs þarf nú að nýta undir sorp.
Fáir sakna sjálfsagt útblástursins frá sorporkustöðunni en allir finna hins vegar fyrir þeim aukna kostnaði sem af þessu hefur hlotist. �?að liggur í augum uppi að flutningur á sorpi, jafnvel alla leið til Blönduósar þýðir aukinn kostnaður, hvort sem er fyrir fjölskyldur eða fyrirtæki í Eyjum. Á sama tíma hefur verið gripið til skömmtunar á umframrafmagni til húshitunar. �?að hefur þýtt að HS-veitur hafa þurft að kynda hitaveituna með olíu, með tilheyrandi kostnaðarauka.
�?á er það skerandi hversu furðuleg sú umhverfisvernd er sem fólgin er í því að trukka sorpi um landið þvert og endilangt á tækjum sem brenna olíu. Á sama hátt getur það ekki talist jákvætt fyrir umhverfið að takmarka framleiðslu á orku með sorpbrennslu og taka þess í stað upp brennslu á svartolíu. �?að er margt skrítið í umhverfiskýrhausnum.
�?rátt fyrir erfiða stöðu nú eru tækifæri til staðar til að snúa vörn í sókn. Mikilvægt er að skoða gaumgæfilega allar lausnir í þessum málum. Ein lausnin gæti verið bygging á nýrri sorporkustöð sem myndi gjörbreyta þeirri stöðu sem nú er uppi. Mögulega væri tvíþættur ávinningur af slíkri byggingu. Til lengri tíma litið myndi það vonandi lækka kostnað og á sama tíma framleiða varmaorku til húshitunar, og svo auðvitað það sem miklu skiptir vera umhverfisvænna heldur en núverandi fyrirkomulag sem hefur verið tíundað hér.
Sigursveinn �?órðarson skipar 8. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.
Trausti Hjaltason skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.