�?rjár kynslóðir við eggjatínslu

Eggjatíminn er hafinn í Eyjum. Margir leggja leið sína í úteyjarnar til að tína egg, aðrir eru á heimalandinu. Fýllinn er orpinn og egg eru því tekin frá honum, svartfuglinn verpir aðeins seinna. Á myndinni er Helliseyingurinn Arngrímur Magnússon að tína fýlsegg í Dalfjallinu og með honum eru afastrákar sem hann er að kenna handtökin. […]
Tækifæri til sóknar í sorpmálum

Árið 2012, þegar sorporkustöð Vestmannaeyinga var lokað eftir hatramma baráttu við þáverandi umhverfisráðherra VG lá fyrir að sorpförgun í Eyjum yrði vandkvæðum bundin. Tekið var upp þriggja flokka flokkunarkerfi og ljóst að hluti af sorpinu okkar yrði að farga á öðrum stöðum en á Heimaey. Vegna legu okkar og takmarkaðra samgangna fór svo að hluti […]
Skemmtileg heimsókn Háskólalestarinnar

Háskólalest Háskóla Íslands kom við í Vestmannaeyjum í síðustu viku. �?etta er í fjórða sinn sem lestin fer um landið en í fyrsta sinn sem hún kemur við í Eyjum. Háskólalestin kynnir hinar ýmsu námsgreinar fyrir fólki á öllum aldri, m.a. eðlisfræði, efnafræði, hugmyndasögu, stjörnufræði, vísindaheimspeki, japönsku og meira að segja Legó-forritun. Síðastliðinn föstudag heimsóttu […]
Hagsmunir fatlaðra

Árið 1997 gerðist Vestmannaeyjabær tilraunasveitafélag um þjónustu við fatlaða og árið 2011 var málaflokkurinn alfarið færður yfir á sveitafélögin. Á þessum tíma hefur margt áunnist í þessum mikilvæga málaflokki enda ríkur vilji hjá öllum bæjarfulltrúum að gera vel og nýta það fjármagn sem sett er í málaflokkinn sem best fyrir þjónustuþegann. Við á lista Sjálfstæðisflokksins […]
Einar Gauti í Víking

Einar Gauti �?lafsson, leikmaður Íslandsmeistara ÍBV í handbolta, hefur ákveðið að leika með 1. deildarliði Víkings næsta vetur. Einar Gauti gekk aftur í raðir ÍBV um miðjan vetur og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með félaginu í síðustu viku. Einar Gauti er 23 ára gamall og á leið í nám í Reykjavík næsta haust. (meira…)
Skelltu þér í flugferð yfir Heimaey

Guðmundur Alfreðsson er mikill flugáhugamaður og hefur sinnt þessu áhugamáli sínu ágætlega í gegnum tíðina. Guðmundur fjárfesti í nýrri fisvél á dögunum, Aircraft Skyranger sem ber einkennisstafina TF170. Hann skellti sér í flugferð í blíðunni í gær og festi myndatökuvél á væng vélarinnar. Afraksturinn má sjá í myndbandinu sem fylgir þessari frétt og svo er […]
Stjórnmálaumræður á ársþingi Íþróttabandalagsins í kvöld

Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja verður haldið í Týsheimilinu í kvöld, miðvikudagskvöld kl. 20.00. Að þinginu loknu um kl. 21.00 mæta fulltrúar stjórnarmálaflokkanna sem bjóða fram við næstu bæjarstjórnarkosningar og svara fyrirspurnum fundargesta. Ekki er ólíklegt að margt eigi eftir að bera á góma, þar sem íþróttir skipa stóran sess í huga Vestmannaeyja og margt sem á […]