Flugið framlengt út mars

Nú um mánaðamót rennur út samningur Vegagerðarinnar við Flugfélagið Erni um áætlunarflug til Vestmannaeyja. Nú hefur verið tryggt að ekki verði rof á þjónustunni og flogið verði út mars. Þetta staðfesti G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi hjá Vegagerðinni rétt í þessu við Eyjafréttir. “Það er búið að semja við Mýflug um flugið út mars mánuð. Þjónustan […]
Vilja tryggja flug út apríl og fjölga ferðum

Á fundi Bæjarráðs fór Bæjarstjóri yfir svör frá Flugfélaginu Erni vegna fyrirspurnar til flugfélagsins um tegundir flugvéla sem notaðar hafa verið i flugferðir til Eyja frá áramótum, sætaframboð og nýtingu sæta. Jafnframt hvort og þá hvenær áætlað sé að hefja flug til Eyja á föstudögum. Í svörum frá flugfélaginu kom fram að frá áramótum hefur […]
Aukaflug til Eyja á Þorláksmessu

Flugfélagið Ernir hefur sett upp aukavél til og frá Eyjum á Þorláksmessu. Brottför frá Reykjavík 09:00 og brottför frá Eyjum 10:00. Bókanlegt á www.ernir.is, miðaverð fyrir fullorðna eru 17.000kr og 10.000kr fyrir börn og minnum á Loftbrúna. (meira…)
Ernir hefur áætlunarflug til Eyja

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja sem haldin var í gær kemur fram að vegagerðin hefur tekið verðtilboði frá flugfélaginu Erni og stefnt er að því að áætlunarflug hefjist nk. sunnudag. Um er að ræða fjórar ferðir í viku. Bæjarráð fangar því að flugfélagið Ernir ætli að hefja áætlunarflug til Eyja og lítur á þetta sem fyrsta […]
Nýting flugsæta um 70%

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarstjórnar í vikunni en Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, gerði grein fyrir flugsamgöngum til og frá Eyjum. Flugið hefur verið ágætlega nýtt eftir að Flugfélagið Ernir hóf reglulegar flugsamgöngu til og frá Vestmannaeyjum þrisvar sinnum í viku. Flognar eru tvær ferðir á þriðjudögum, sú fyrri um morguninn og sú seinni […]
Nýting flugsæta um 60%

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í vikunni. Bæjarstjóri upplýsti bæjarráð um gang flugsamgangna til Vestmannaeyja eftir að Flugfélagið Ernir hóf reglulegar flugsamgöngur til og frá Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélaginu Erni hefur nýting flugsæta verið um 60%. Bæjarráð þakkar í niðurstöðu sinni fyrir upplýsingarnar og hvetur bæjarbúa, fyrirtæki og íþróttafélög til þess […]
Mýflug kaupir meirihluta í flugfélaginu Erni

lugfélagið Mýflug hefur ásamt öðrum fjárfesti keypt 77,1 prósent hlut í flugfélaginu Erni. Þetta staðfesta þeir Hörður Guðmundsson, eigandi Ernis og Leifur Hallgrímsson, eigandi Mýflug við Fréttablaðið sem fyrst greindi frá málinu. „Það eru nokkrir fjárfestar sem við vorum að selja hluta af fyrirtækinu og Mýflug er einn af þeim. Með sölunni er verið að […]
Flug hefst að nýju til Vestmannaeyja

Flugfélagið Ernir hefur gert samkomulag við Samgöngu- og Sveitarstjórnarráðuneytið um flug til Eyja þrisvar sinnum í viku, tvö flug á þriðjudögum og eitt á föstudögum. Flug í kringum hátíðirnar verður með aðeins öðrum hætti en þegar föst áætlun byrjar í upphafi nýs árs og er fólki bent á áætlun og upplýsingar um flug á vefsíðu […]
Flugferðum fjölgar til Vestmannaeyja

Flugfélagið Ernir mun, í samráði við Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum, fjölga flugferðum um eina ferð í viku til og frá Vestmannaeyju frá og með 1. febrúar. Flogið verður því þrjá daga í viku, í stað tveggja, til og frá Eyjum, þ.e. mándaga, þriðjudaga og föstudaga. Upplýsingar um flugáætlun félagsins er að finna […]
Samið um lágmarksflug til Vestmannaeyja fram á vor

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur samið við Flugfélagið Erni um lágmarksflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja til 1. júní á næsta ári. Farnar verða að tvær ferðir í viku, fram og til baka, á mánudögum og föstudögum. Fyrsta ferðin verður þó á fimmtudaginn kemur, á Þorláksmessu. Áætlunarflug á markaðslegum forsendum milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja lagðist af í […]
Staða flugsins áhyggjuefni

„Það er auðvitað áhyggjuefni að geta ekki gengið að því að vera með fastar flugferðir til og frá Vestmannaeyjum,“ segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í samtali við Morgunblaðið, um þá ákvörðun flugfélagsins Ernis að hætta flugi til og frá Vestmannaeyjum. Félagið flaug sína síðustu áætlunarferð til Eyja fyrr í septembermánuði. Ástæðan þar að baki […]
Hvernig er best að endurreisa flugsamgöngur

Flugfélagið Ernir hættir áætlunarflugi til Vestmannaeyja eftir margra ára þakkarverða þjónustu. Það eru ekki góðar fréttir fyrir samfélagið, en þær koma ekki óvart. Flug á markaðslegum forsendum til Vestmannaeyja er í dag erfiður rekstur. Besta leiðin til að endurreisa flugsamgöngur er að skapa eftirspurn eftir Vestmannaeyjum. Markaðssetja Vestmannaeyjar markvisst, skilgreina ferðaþjónustuna sem iðnað og tækifæri […]
Flugfélagið Ernir hættir flugi til Vestmannaeyja

Flugfélagið Ernir hefur ákveðið að hætta flugi til Vestmannaeyja sökum lítillar eftirspurnar og ótryggra aðstæðna í þjóðfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér rétt í þessu. Telja stjórnendur félagsins ekki ráðlagt að halda inn í veturinn að óbreyttu. Félagið er í stakk búið til að hefja flug aftur til Eyja án […]
Flugvél snjóaði inni í Eyjum

Sá sjaldgæfi atburður átti sér stað í gær að flugvél flugfélagsins Ernis snjóaði inni á Vestmannaeyjaflugvelli. “Vélin lenti hérna í gær og þá var bara að byrja að snjóa það þyngdist það hratt að ekki var hægt að koma henni á loft aftur. Þetta er í annað skiptið sem þetta gerist síðan ég byrjaði hérna […]
Þurftum að bregðast við breyttu farþegastreymi

Aukin ferðatíðni Herjólfs eru frábær samgöngubót fyrir Vestmannaeyjar það hefur svo sannalega sýnt sig í sumar. Hin hliðin á þessum fjölda ferða er svo minni nýting á flugsamgöngum. Frá og með 1. september mun flugfélagið fækka ferðum sínum niður í tíu ferðir í viku. „Flogið verður alla daga nema laugardaga og verða tvær ferðir mánudaga, miðvikudaga, […]
Flugin tíðari og vélarnar stærri

Flugferðir til Vestmannaeyja verða tíðari og sætafjöldi meiri yfir verslunarmannahelgina. Þetta segir Ásgeir Örn Þorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri flugfélagsins Ernis. „Þetta verður svipað og undanfarin ár. Við verðum með fjölda ferða alla helgina. Stærsti dagurinn er á mánudaginn þegar við fljúgum alveg frá klukkan sjö um morguninn og fram á kvöld,“ segir Ásgeir. „Það eru […]
Ernir fækkar flugferðum til Eyja vegna erfiðrar fjárhagsstöðu

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var ný 32 farþega skrúfuþota Ernis kyrrsett vegna ógreiddra gjalda til ríkisfyrirtækisins Isavía. Hörður Guðmundsson eigandi Ernis sagði í samtali við Eyjafréttir að kyrrsetningin hafi komið á mjög viðkvæmum tíma og að fjárhagsstaða félagsins væri þung og verið væri að bregðast við því með fækkun ferða. „Fjárhagsstaða félagsins er […]
Nýja vélin lenti í Vestmannaeyjum í gær

Nýjasta vél í flota flugfélagsins Ernis, TF-ORI, fór í sitt fyrsta áætlunarflug til Vestmannaeyja í gær. Vélin er af gerðinni Dornier 328-100 og var framleidd árið 1998. Glæsileg viðbót hjá Erni sem mun koma sér vel í flugi sínu til Vestmannaeyja. Bæjarstjórinn okkar Íris Róbertsdóttir tók á móti flugvélinni og færði starfsfólki um borð í vélinni blóm. Ljósmyndari […]