Takk fyrir okkur!
karlakor_fanar_ads
Karlakór Vestmannaeyja hélt á uppstigningardag árlega vortónleika sína í Akóges. Ljósmynd/aðsend

Karlakór Vestmannaeyja hélt á uppstigningardag árlega vortónleika sína. Aðsókn var vonum framar og gengu tónleikarnir vel.

Í tilkynningu segir að meðlimir í Karlakór Vestmannaeyja vilji koma á framfæri þakklæti til þeirra sem mættu og nutu kvöldsins með þeim og þá ekki síst meðlimum úr Karlakórnum Ernir sem gerðu sér ferð frá Ísafirði til þess að koma fram á tónleikunum.

„Þá viljum við koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hafa aðstoðað okkur með einum eða öðrum hætti þar á meðal: VSV, Ísfélag, Eimskip, Íslandsbanki, Landsbankinn, Geisli, Skipalyftan, Miðstöðin, Vélsmiðjan ÞÓR, Steini og Olli, Eyjablikk, LAXEY, Karl Kristmanns, Herjólfur, Grímur kokkur, Kráin, The Brothers Brewery, Kór Landakirkju, Leturstofan, Eyjasýn, Akóges og Vestmannaeyjabær.
Leikfélag Vestmannaeyja auglýsti nýlega aukasýningu til styrktar Sveinbirni Guðmundssyni á Hvítasunnudag, kl. 20:00. Við hvetjum Eyjamenn til þess að tryggja sér miða á þessa skemmtilegu sýningu og styrkja gott málefni. Sveinbjörn sem glímir við erfið veikindi starfaði um tíma með Karlakór Vestmannaeyja við höfum því ákveðið að leggja þessari söfnun lið og hvetjum aðra til að gera það sama. Stofnaður hefur verið styrktarreikningur í hans nafni: 0582-14-001055 kt. 420269-6769.”

Nýjustu fréttir

ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.